Stýrivextir óbreyttir Atli Ísleifsson skrifar 5. október 2016 08:55 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Vísir/Pjetur
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,25%. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri munu gera grein fyrir yfirlýsingu og ákvörðun peningastefnunefndar um vexti Seðlabankans á fréttamannafundi klukkan 10 sem sýndur verður í beinni útsendingu á Vísi. „Sem fyrr er gert ráð fyrir miklum hagvexti á þessu og næsta ári og benda nýjustu vísbendingar til þess að vöxturinn sé jafnvel kröftugri en áður hafði verið gert ráð fyrir. Þrátt fyrir miklar launahækkanir og öran vöxt eftirspurnar hefur verðbólga haldist undir markmiði um tveggja og hálfs árs skeið. Viðskiptakjarabati, lítil alþjóðleg verðbólga, aðhaldssöm peningastefna og hækkun gengis krónunnar, þrátt fyrir töluverð gjaldeyriskaup Seðlabankans, hafa vegið á móti áhrifum launahækkana á verðbólgu. Í september mældist verðbólga 1,8% og jókst hún töluvert frá fyrri mánuði. Að hluta endurspeglar það leiðréttingu á skekkju í verðbólgumælingum Hagstofu Íslands á tímabilinu mars til ágúst sl. Ofspá Seðlabankans á verðbólgu fram eftir ári var því í raun minni en áður var talið. Verðbólguhorfur hafa þó líklega lítið breyst frá þeirri spá sem bankinn birti í ágúst enda hefur gengi krónunnar hækkað enn frekar og verðbólguvæntingar eru áfram við verðbólgumarkmiðið. Líkur á vaxandi spennu í þjóðarbúskapnum og óvissa í tengslum við losun fjármagnshafta kalla á varfærni við ákvörðun vaxta. Aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum mun því ráðast af efnahagsþróuninni og því hvernig tekst til við losun fjármagnshafta,“ segir í tilkynningu frá Seðlabankanum.
Mest lesið Ísland að detta úr tísku Viðskipti innlent „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Ísland að detta úr tísku Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Sjá meira