Glamour

Vogue endurgerir tónlistarmyndbandið við Freedom með nýjum fyrirsætum

Ritstjórn skrifar
Margar af frægustu fyrirsætum heims koma fram í myndböndunum.
Margar af frægustu fyrirsætum heims koma fram í myndböndunum. Mynd/Skjáskot
Vogue hefur endurgert tónlistarmyndbandið við lagið Freedom með söngvaranum George Michael. Myndbandið kom fyrst út á tíunda áratuginum og skartaði þá allar stærstu fyrirsætur þess tíma. 

Þetta skiptið hefur Vogue smalað saman mörgum af frægustu fyrirsætum dagsins í dag. Á meðal þeirra sem koma fram í myndbandinu eru þær Irina Shayk, Adriana Lima, Anna Ewers, Joans Smalls og fleiri. 

Myndböndin eru í mörgum minni klippum og þar má sjá fyrirsæturnar í góðu stuði. Þær eru flott stíliseraðar og á víð og dreif um New York. 

Myndbrotin má sjá hér fyrir neðan og upprunalega myndbandið er neðst í fréttinni. 






×