Leikjavísir

World of Warcraft gæti verið að ná sínum hæstu hæðum til þessa

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Legion sendir okkur til heimsálfunnar Broken Isles og leyfir okkur að flakka um svæði á borð við ævaforna skóginn Val'sharah og hið ógnarháa Highmountain.
Legion sendir okkur til heimsálfunnar Broken Isles og leyfir okkur að flakka um svæði á borð við ævaforna skóginn Val'sharah og hið ógnarháa Highmountain.
Legion, nýjasti aukapakkinn fyrir fjölspilunarleikinn World of Warcraft, er fínasta skemmtun. Meira er að gera en í hinum nýliðna Warlords of Draenor en eitt helsta umkvörtunarefni spilara síðasta aukapakka var skortur á efni.

Flakkaðu um nýja heimsálfu. Skoðaðu fornar rústir og slátraðu djöflum, ófreskjum og saklausum dýrum í tonnavís. Komdu karakternum þínum upp um nokkur level og nældu þér í alls konar brynjur og vopn. Svona mætti lýsa hverjum einasta aukapakka fyrir sögufræga fjölspilunarleikinn World of Warcraft og það gildir sömuleiðis um Legion.

Eftir fjórtán mánuði af því að drepa orka og djöfla í Hellfire Citadel, kastala stútfullum af orkum og djöflum, var flestum spilurum World of Warcraft farið að leiðast. Til samanburðar myndu fæstir vilja horfa á sömu kvikmynd viku eftir viku. Sama hvort sú mynd væri Star Wars II eða Star Wars IV. Ekkert nýtt efni hafði komið út í rúmt ár og því var eftirvæntingin gríðarleg þegar Legion kom út um mánaðarmótin.

Legion sendir okkur til heimsálfunnar Broken Isles og leyfir okkur að flakka um svæði á borð við ævaforna skóginn Val‘sharah og hið ógnarháa Highmountain. Markmiðið er að koma í veg fyrir innrás djöflanna sem skipa The Burning Legion en eftir þeim er aukapakkinn nefndur.

Ásamt því að bjóða upp á nýjar útgáfur af rótgrónu efni á borð við dýflissur ((e. Dungeons) svæði þar sem fimm manns geta saman drepið hina ýmsu endakalla),  áhlaup ((e. Raids) svæði þar sem allt að þrjátíu geta gert slíkt hið sama), ný landsvæði og ný verkefni býður Blizzard, framleiðandi World of Warcraft, upp á fjölmargar nýjungar í Legion sem eru vel heppnaðar.

Til að skilja um hvað ræðir er vert að taka fram að spilarar búa sér til karaktera sem þeir síðan spila. Spilarinn getur valið um tólf mismunandi stéttir (e. Classes) fyrir karakterinn sinn og hefur hver stétt karaktera mismunandi eiginleika, árásir og galdra. Þrjár nýjungar eru í aukapakkanum sem tengjast þessum svokölluðu stéttum.

Í fyrsta lagi ber að nefna glænýja stétt, Demon Hunter, sem byggð er á samnefndum karakterum úr herkænskuleiknum Warcraft 3. Heillaður af sögu stéttarinnar, sem gengur út á að nota krafta djöflanna gegn þeim, ásamt því að heillast af öllu því sem nýtt er, valdi blaðamaður auðvitað að spila Demon Hunter á ferðalagi sínu um Broken Isles.

Demon Hunter vopnið komið í hendur.
Þá komum við að hinum nýjungunum. Það fyrsta sem maður gerir í Legion er að ná í ævafornt vopn sem hentar stétt manns og sérhæfingu, en stéttir eru með tvær til fjórar sérhæfingar sem ganga ýmist út á að drepa, verjast og lækna. Vopnið sem maður sækir sér fylgir manni svo út allan aukapakkann og styrkir spilarinn það með því að drepa hina og þessa og vinna verkefni. Í kjölfarið tekur maður við stjórntaumunum í svokölluðu stéttarvígi (e. Class Hall), sem er vígi allra af þinni stétt. Þaðan getur maður sent sína sterkustu undirmenn í ýmis verkefni sem maður telur fyrir neðan virðingu sína sem leiðtogi.

Blaðamanni fannst einstaklega skemmtilegt að geta stýrt slíku stórveldi og hugsaði til þess þegar hann var á vettvangi í Broken Isles að prófa aðra nýjung, World Quests. Líkt og hin hefðbundnu quests, eða verkefni, sem maður þarf að vinna á meðan maður er að komast í hæsta level leiksins, nú 110, þarf maður að gera hitt og þetta. Drepa tíu svín, ná í tuttugu köngla, klifra uppá fjöll og þess háttar. Nú er hins vegar búið að sníða það kerfi að þeim leikmönnum sem eru í hæsta levelinu. Ef spilari vill ekki tala við annað fólk á meðan hann drepur endakalla getur hann einfaldlega farið einn út í heim og fengið fyrir það verðlaun sem hæfa hans tign. Leikurinn hefur því aldrei verið auðveldari fyrir þá sem eiga enga vini og nú.

Allar þessar nýjungar gera leikinn mun betri. Meira efni er nú til staðar fyrir spilara svo þeim ætti síður að leiðast á því að drepa sömu endakallana í fjórtán mánuði. Nýju dýflissurnar og áhlaupin virka einkar vel við fyrstu spilun en tíminn mun leiða í ljós hversu vel þau eldast. Demon Hunters eru góð viðbót í flóru stétta og World Quests bjóða manni upp á að gera eitthvað þegar enginn vina manns vill spila með manni eða einfaldlega ef maður hefur ekki nægan tíma í áhlaup.

Kíkt í eitt stykki Dungeon.
Öll svæði leiksins eru listilega hönnuð og á Blizzard lof skilið fyrir fegurðina sem heimurinn hefur að geyma. Hið sama má segja um tónlist og talsetningu en aldrei hefur talsetning verið meiri en nú í World of Warcraft.

Þá hefur Blizzard nú þegar tilkynnt um næsta plástur fyrir leikinn, óvenju snemma. Hann mun innihalda einkar stóra dýflissu og nýtt áhlaup sömuleiðis. Auk apps til að halda utan um undirmenn þína svo þú getir sent þá í ýmis verkefni. Allt stefnir í að nóg verði af efni fyrir spilara í Legion og skulum við vona að sú verði raunin þar sem enginn hefur áhuga á að spila í gegn um sama efnið fjórtán mánuði í röð.

Ekki hefur enn verið opnað fyrir ný áhlaup, ef til vill svo spilarar geti tekið sér tíma í að komast upp í level 110. Það sem blaðamaður hefur hins vegar séð af þeim úr myndböndum þeirra sem spiluðu betuna fyrir aukapakkann lofar hins vegar góðu.

Eftir að hafa náð í goðsagnakennt vopn, spilað upp í level 110, sent undirmenn í hættulega leiðangra, gert allnokkur World Quests og drepið vonda endakalla í dýflissum er blaðamaður einkar ánægður með Legion enn sem komið er.

Undirmennirnir safnast saman í Class Hall.
Allt í allt virðist aukapakkinn einkar vel heppnaður og mun betri en blaðamanni þótti Warlords of Draenor þegar sá aukapakki var um viku gamall. Erfitt reyndist að skrifa dóminn niður án þess að fá kitl í puttana og vilja hlaupa heim að spila en það hafðist þó. Enga augljósa galla er að sjá á Legion á þessum tímapunkti. Enginn skortur er á efni, það er raunar svo mikið að blaðamaður lendir í stökustu vandræðum að reyna að ákveða hvernig skuli ráðstafa spilunartíma sínum.

Ótímabært er að tala um hvort aukapakkinn sé sá besti í sögu World of Warcraft en ef fram heldur sem horfir mun þeirri staðhæfingu vera fleygt fram þegar líða fer undir lok aukapakkans.

Þar sem engir plástrar eru út komnir og eftir á að opna fyrir efni er ekki hægt að gefa Legion fullt hús,  en ef það efni verður á pari við það sem nú þegar er út komið mun vera erfitt að neita aukapakkanum um fimmtu stjörnuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×