Viðskipti erlent

Vefrisinn Google með nýtt stýrikerfi í smíðum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Óvíst er hvaða hlutverki nýja stýrikerfið Fuchsia mun gegna.
Óvíst er hvaða hlutverki nýja stýrikerfið Fuchsia mun gegna. Vísir/Getty
Forsvarsmenn Google eru að smíða nýtt stýrikerfi sem er alveg ótengt Android. Síða um nýja stýrikerfið, sem nefnist Fuchsia, birtist á dögunum á kóðasíðunni GitHub.

Milljarðar snjallsíma styðjast við Android-stýrikerfi Google í dag. Forsvarsmenn Google hafa ekki tilkynnt neitt um þetta nýja stýrikerfi. Heimildir Business Insider benda til þess að það sé enn í frumþróun, því er enn algjörlega óljóst undir hvað stýrikerfið verði notað.

Bloggarar á Android Police telja að mögulega verði það notað fyrir internet hlutanna, meðal annars snjallheimilistæki eins og ísskápa og brauðristir. Á blogginu eru færð rök fyrir því að Linux-stýrikerfið og Android-stýrikerfið séu ekki góð fyrir óhefðbundnar tölvur. Því sé eðlilegt að Google vilji þróa nýtt stýrikerfi fyrir internet hlutanna, eins og fyrirtækið gerði fyrir snjallsíma á sínum tíma.

Vert er að nefna að Fuchsia er ekki takmarkað við internet hlutanna. Bloggarar Android Police skoðuðu stýrikerfið vandlega og sáu að hægt verður að nota það í fjölda kerfa, meðal annars í snjallsíma og borðtölvur.

Það getur því verið að Fuchsia leysi Android- og Chrome-stýrikerfin af hólmi, til þess að sama stýrikerfi verði notað bæði í hefðbundnum tölvum og snjallsímum.

Aðrar getgátur eru um að Fucshia sé einfaldlega skemmtilegt verkefni Google-starfsmanna og muni aldrei líta dagsins ljós hjá almenningi. Einungis tíminn mun leiða í ljós hver ætlun Google er með nýja stýrikerfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×