Lífið

Rihanna heimsækir hauslausa styttu af sjálfri sér

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Það eru ekki margir sem verða þess heiðurs aðnjótandi að styttur séu gerðar þeim til heiðurs, en söngkonan Rihanna er ein af þeim. Í Berlín er gríðarstór stytta af söngkonunni þar sem vantar á hana höfuðið. Andlit hennar hefur verið málað á bringu styttunnar.

Rihanna skellti sér að sjálfsögðu í heimsókn til hauslausu eftirlíkingarinnar, sem gerð er eftir mynd sem blaðasnápur náði af henni á strönd. Okkur til mikillar gleði tók hún allt fundinn upp á Snapchat.

Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan var söngkonan alsæl með tvífara sinn. Hún fékk sér kampavín áður en hún fór og fann styttuna, enda ekki á hverjum degi sem maður hittir risastóra útgáfu af sjálfum sér.

Styttan er eftir kólumbíska listamanninn Juan Sebastián Peláez og er hluti af níunda Berlínar tvíæringnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×