Fulltrúar Brims segja stjórnarkjör hafa verið fullkomlega lögmætt Atli Ísleifsson skrifar 26. júlí 2016 09:06 Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum gerir út níu skip til uppsjávar-, tog- og netaveiða. vísir/stefán
Fulltrúar Brims, sem er minnihlutaeigandi í Vinnslustöðinni, segja stjórnarkjör í fyrirtækinu, sem fram fór á aðalfundi þann 6. júlí, hafa verið fullkomlega lögmætt. Í tilkynningu frá Brimi segir að fulltrúar stærsta hluthafans í Vinnslustöðinni, Seilar, hafi stigið fram í fjölmiðlum um helgina og lýst því yfir að farið yrði fram á að stjórn, sem ekki lengur hafi umboð til að starfa fyrir hönd félagsins, boði til nýs hluthafafundar þar sem enn og aftur eigi að kjósa nýja stjórn yfir félagið. Þessu mótmæla fulltrúar Brims harðlega. „Niðurstaða fyrra stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins 6. júlí sl. var fullkomlega lögmæt og aðeins á eftir að varpa hlutkesti um það hver tekur sæti sem fimmti stjórnarmaður félagsins í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga. Það er mikilvægt að forðast valdníðslu og virðingarleysi gagnvart lýðræðislegum kosningum. Heppilegast væri að fulltrúar meirihlutans með Harald Gíslason í broddi fylkingar sættu sig við niðurstöðu hins fyrra stjórnarkjörs, þrátt fyrir að niðurstaðan hafi ekki verið þeim þóknanleg, svo réttkjörin stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. geti hafið störf hið fyrsta með hagsmuni félagsins, starfsmanna og annarra sem því tengjast að leiðarljósi. Slík niðurstaða er sanngjörn fyrir alla hluthafa, ekki bara meirihlutann,“ segir í tilkynningunni. Fara fulltrúar Brims fram á að fulltrúar meirihlutans bíði niðurstöðu yfirstandandi rannsóknar Hlutafélagaskrár á gjörðum þeirra á síðasta aðalfundi áður en boðað verði til hluthafafundar. Hlutafélagaskrá sé úrskurðaraðili í svona málum samkvæmt hlutafjárlögum.
Tengdar fréttir Stærsti hluthafinn í Vinnslustöðinni vill endurtaka stjórnarkjör Seil, stærsti hluthafi Vinnslustöðvarinnar hf., hefur óskað eftir að boðað verði til hluthafafundar til að kjósa nýja stjórn. 24. júlí 2016 11:24 Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira
Stærsti hluthafinn í Vinnslustöðinni vill endurtaka stjórnarkjör Seil, stærsti hluthafi Vinnslustöðvarinnar hf., hefur óskað eftir að boðað verði til hluthafafundar til að kjósa nýja stjórn. 24. júlí 2016 11:24