Sport

Ísland er stærsta litla fótboltalandið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Samsett
Íbúafjöldi Íslands hefur verið á allra vörum í fótboltaheiminum eftir hetjudáðir íslensku landsliðanna á síðustu árum.

Við Íslendingar erum kannski sum hver orðin þreytt á þessum svokallaða útreikningi út frá höfðatölu en sjaldan hefur samanburður stungið jafnmikið í augun og sá sem sýnir samanburð á þeim þjóðum sem hafa skilað bæði karla- og kvennalandsliði í átta liða úrslit á síðustu tveimur Evrópumótum í knattspyrnu.

Karlalandsliðið endaði sitt ævintýri á 5-2 tapi á móti gestgjöfum Frakka í átta liða úrslitunum á EM í Frakklandi fyrir rúmri viku og fyrir tæpum þremur árum endaði einnig ævintýri stelpnanna á tapi á móti gestgjöfum Svía. Bæði lið höfðu endurskrifað íslensku fótboltasöguna fyrr í mótinu.

Það er mjög fróðlegt að skoða listann yfir þær þjóðir sem hafa átt lið meðal þeirra átta efstu á síðustu tveimur Evrópumótum, EM karla í Frakklandi 2016 og EM kvenna í Svíþjóð 2013.

Fótboltarisarnir þrír eru þarna allir, eða Frakkland, Þýskaland og Ítalía. Þær eru allar þjóðir með hátt í tvöhundruðfalda íbúatölu Íslands auk þess að vera miklar fótboltaþjóðir. Þjóðverjar unnu EM-titilinn hjá konunum og Þýskaland er eina þjóðin með bæði liðin í undanúrslitum.



Þrjú af átta bara með lið hjá körlunum

Frakkar eru með frábær lið hjá báðum kynjum en körlunum mistókst að vinna úrslitaleikinn á heimavelli og konurnar töpuðu óvænt fyrir Dönum í vítakeppni í átta liða úrslitunum eftir þrjá góða sigra í fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu. Ítölsku landsliðin töpuðu síðan bæði í átta liða úrslitunum eins og þau íslensku.

Wales, Belgía og Pólland áttu bara lið á karlamótinu og Norðurlandaþjóðirnar Noregur og Danmörk komust bara inn á EM með kvennalið sín. Sænska karlalandsliðið sat eftir í riðlakeppninni og Spánverjar, sem áttu lið í átta liða úrslitum kvenna, töpuðu í sextán liða úrslitum karlakeppninnar.

Eftir stendur því litla Ísland við hlið fótboltarisanna þriggja, Frakklands, Þýskalands og Ítalíu. 320 þúsund manna þjóð komast svona langt með bæði landsliðin sín en hinar þrjár eru með á bilinu 60 til 81 milljón íbúa.

Knattspyrnusambandi Íslands hefur tekist að koma báðum landslið­um sínum í fremstu röð í vinsælustu íþrótt í heimi og eftir víkingaklappið vinsæla og árangur karlalandsliðsins í Frakklandi er íslenskur fótbolti kominn á heimskortið.

Næsta skrefið er síðan að komast enn lengra og inn á sjálft heimsmeistaramótið. Því hefur hvorugu liðinu okkar tekist en af hverju að hætta að láta sig dreyma núna þegar liðin hafa tekið svo mörg stórbrotin skref á síðustu árum?


Tengdar fréttir

Stjörnur ESPN á EM 2016 eru Griezmann, Ísland og Wales

Bandaríski íþróttamiðilinn ESPN fjallaði ítarlega um Evrópumótið í Frakklandi á meðan því stóð og var með einn bloggara frá hverri þátttökuþjóð sem sögðu frá keppninni frá sínu sjónarhorni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×