Jafntefli í austurrísku kosningunum Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 23. maí 2016 07:00 „Enga nasista í forsetahöllina.“ Hofer yrði fyrsti þjóðarleiðtoginn úr hópi öfga-þjóðernissinna nái hann kjöri. Nordicphotos/AFP
Enginn augljós sigurvegari kom upp úr kjörkössunum í austurrísku forsetakosningunum í gær. Eftir talningu atkvæða var Norbert Hofer, frambjóðandi hins öfga-þjóðernissinnaða Frelsisflokks, með 51,9 prósent atkvæða, litlu meira en mótherji hans Alexander Van der Bellen, frambjóðandi Græningja, sem hlaut 48,1 prósent atkvæða. Þrátt fyrir forystu Hofers er ekki hægt að lýsa hann sigurvegara þar sem utankjörfundaratkvæði verða talin í dag og munu þau skipta sköpum fyrir frambjóðendurna þar sem 14 prósent kjósenda nýttu sér réttinn til að kjósa utan kjörfundar. Framganga kosninganna var æsispennandi en á meðan á talningu stóð var ekki marktækur munur á frambjóðendunum tveimur og tóku þeir forystu til skiptis.Norbert Hofer gæti verið kjörinn forseti Austurríkis áður en dagur er úti.Nordicphotos/AFPKosningabaráttan hefur dregið fram afar ólíkar hugmyndir frambjóðendanna en baráttan hefur að mörgu leyti snúist um innflytjenda- og flóttamannamál. Hofer hefur tekið harða afstöðu gegn því að Austurríki taki við mörgum flóttamönnum en Van der Bellen talaði fyrir samheldinni Evrópu sem breiði út faðminn. Hefðinni samkvæmt er hlutverk forseta ekki valdamikið. Líkt og á Íslandi er meginhlutverk hans að veita stjórnarmyndunarumboð og veita ríkisstjórnum lausn. Hofer hefur hins vegar hótað því að verði hann forseti muni hann beita völdum forseta sem skilgreind eru í stjórnarskrá en hefur aldrei verið beitt. Til að mynda hótaði hann í sjónvarpskappræðum í síðustu viku að hann myndi leysa upp neðri deild austurríska þingsins og boða til kosninga en flokkur hans, Frelsisflokkurinn, mælist með mest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. „Það kæmi ykkur á óvart hvað forseti er fær um að gera,“ sagði Hofer í kappræðunum. Fari svo að Hofer verði kosinn forseti yrði hann fyrsti þjóðarleiðtoginn í Evrópu til að koma úr flokki öfga-þjóðernissinna.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 23. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Sjá meira