Glamour

Fjölbreytileikinn allsráðandi hjá H&M

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Sænski verslanarisinn sem við Íslendingar þekkjum svo vel, Hennes & Mauritz, sýndi haust og vetrarlínu sína á tískuvikunni í París í gærkvöldi. Línan sem umræðir nefnist Studio og er örlítið dýrari en annar fatnaður hjá H&M og kemur einungis í útvaldar verslanir. 

Fatnaðurinn var klæðilegur með þjóðlegu ívafi. Síðir kjólar og pils úr þunnum efnum, stórir hattar og áberandi skartgripir. Litadýrð í bland við svart og silfur.

Það sem þó vakti meiri athygli en fötin sjálf var fjölbreytt fyrirsætuval H&M á tískupallinum en stærstu tískumerkin hafa gjarna verið gagnrýnd fyrir einhæft val þar sem mjóar fyrirsætur með hvíta húð eru yfirleittt í miklum meirihluta. 

Sú var ekki raunin í gær hjá H&M. Allskonar líkamsgerðir, húðlitir og aldur mátti sjá á tískupallinum. Stór nöfn á borð við Ashley Graham, Andreja Pejic, Freja Beha, Amber Valletta, Natasha Poly og hin eina sanna Pat Cleveland settu lit á sýninguna sem var hin skemmtilegasta að sjá. 

Til fyrirmyndar hjá Svíunum og vonandi fylgja fleiri tískuhús fast á eftir. 



Andreja Pejic.
Anja Rubik.
Amber Valletta.
Natasha Poly.
Ashley Graham.
Pat Cleveland.
Freja Beha.

The beautiful @ambervalletta in tonight's #HMStudioAW16 show. #PFW #AW16

A video posted by H&M (@hm) on






×