Ég vil Lindu Pétursdóttur sem forseta Ólafur Gunnarsson skrifar 4. mars 2016 15:03 Ég vil Lindu Pétursdóttur sem forseta. Það er aftur kominn tími til þess að kona verði forseti. Linda yrði sómi lands og þjóðar, sverð þess og skjöldur - og Linda er líka kona með bein í nefinu sem þorir að tala eins og henni býr í brjósti - svo sem ævisaga hennar sýndi þar sem hún segir frá lífshlaupi sínu af dæmafáu hugrekki og dregur hvergi strik yfir sem er einmitt aðalkostur bókarinnar, enda best að gera sér strax grein fyrir því að lægi við landauðn ef við ætluðu að leita uppi vammlausa manneskju til þess að gegna embætti forseta Íslands – Linda hefur lifað viðburðaríkri ævi og vegna þess að við erum land sem litið er til með virðingu og við álitin brautryðjendur þegar mál kynjanna eru rædd erlendis - þá þurfum við einmitt slíka konu á Bessastaði – annars er allt okkar tal um jafnrétti inntómt hjal. Við þurfum heimskonuna Lindu Pétursdóttur sem forseta, – það yrði stíll yfir Lindu með Ísabellu dóttur sína á Bessastöðum. Hér í eina tíð vakti hún athygli á Íslandi þegar hún var kosin fegursta kona í heimi – sem forseti lands okkar yrði hún okkur til enn meira sóma en með fegurðinni einni saman forðum. Kjósum Lindu Pétursdóttur.Ólafur Gunnarsson rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Forsetakosningar 2016 Skoðun Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Ég vil Lindu Pétursdóttur sem forseta. Það er aftur kominn tími til þess að kona verði forseti. Linda yrði sómi lands og þjóðar, sverð þess og skjöldur - og Linda er líka kona með bein í nefinu sem þorir að tala eins og henni býr í brjósti - svo sem ævisaga hennar sýndi þar sem hún segir frá lífshlaupi sínu af dæmafáu hugrekki og dregur hvergi strik yfir sem er einmitt aðalkostur bókarinnar, enda best að gera sér strax grein fyrir því að lægi við landauðn ef við ætluðu að leita uppi vammlausa manneskju til þess að gegna embætti forseta Íslands – Linda hefur lifað viðburðaríkri ævi og vegna þess að við erum land sem litið er til með virðingu og við álitin brautryðjendur þegar mál kynjanna eru rædd erlendis - þá þurfum við einmitt slíka konu á Bessastaði – annars er allt okkar tal um jafnrétti inntómt hjal. Við þurfum heimskonuna Lindu Pétursdóttur sem forseta, – það yrði stíll yfir Lindu með Ísabellu dóttur sína á Bessastöðum. Hér í eina tíð vakti hún athygli á Íslandi þegar hún var kosin fegursta kona í heimi – sem forseti lands okkar yrði hún okkur til enn meira sóma en með fegurðinni einni saman forðum. Kjósum Lindu Pétursdóttur.Ólafur Gunnarsson rithöfundur.