Opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur Þorvaldur Þorvaldsson skrifar 29. janúar 2016 07:00 Kæra Katrín. Mig langar að spyrja um álit þitt og VG á máli sem nokkuð hefur verið til umfjöllunar og skiptir talsverðu máli frá ýmsum sjónarhóli. Undanfarið hefur viðskiptabann gagnvart Rússlandi, sem Ísland hefur tekið þátt í undir handarjaðri Evrópusambandsins, ratað á ný í fjölmiðla. Tilefnið er síðbúið andsvar Rússa sem hafa sett bann við innflutningi matvæla frá Íslandi og fleiri löndum. Útgerðarmenn og fiskútflytjendur bera sig illa og látið hefur verið í veðri vaka að þeirra hagsmunir séu einu rökin gegn viðskiptabanninu. Það sé borið uppi af óvéfengjanlegum málstað og andstaða gegn því feli í sér að selja sál sína fyrir peninga. Því er haldið fram að Rússar hafi brotið alþjóðalög í átökunum í Úkraínu og með innlimun Krímskagans. En málið er ekki svo einfalt. Hver er þá hinn raunverulegi málstaður að baki viðskiptabannsins gagnvart Rússlandi? Í febrúar 2014 var rétt kjörinn forseti Úkraínu, Viktor Janukovitsj, hrakinn frá völdum í valdaráni fasista, sem helstu máttarvöld Evrópusambandsins og Bandaríkjanna stóðu á bak við. Valdaránsstjórnin hóf feril sinn með því að afnema stöðu rússnesku sem opinbers tungumáls og ógna rússneskumælandi íbúum á margan hátt. En drjúgur hluti landsmanna er rússneskumælandi, sérstaklega í austurhéruðunum og á Krímskaga þar sem Rússar eru í verulegum meirihluta. Enda tilheyrði Krímskagi Rússlandi til ársins 1954 og innlimun hans í Úkraínu orkaði mjög tvímælis. Samkvæmt samningi frá uppskiptum Sovétríkjanna hafa Rússar haft aðstöðu fyrir flotastöð í Sevastopol á Krímskaga til að verja sig gegn flaugum NATO sem umkringja Svartahafið að mestu. Niðurstaðan er sú að málstaður viðskiptabannsins sé stuðningur við ólöglega valdatöku fasista í Úkraínu og óhefta útþenslu NATO og Evrópusambandsins. En áhrifin eru vaxandi spenna og hatur. Hér heima fer utanríkisráðherrann mikinn og heldur því fram að samstaða sé á Alþingi um viðskiptabannið gegn Rússlandi. Því langar mig að spyrja þig, Katrín, um afstöðu þína og þíns flokks til málsins og hvort þið styðjið viðskiptabannið eins og utanríkisráðherrann gefur í skyn. Ef svarið er já, óska ég eftir að helstu rök fyrir því fylgi með. Ef svarið er hins vegar nei er auðvitað gott að rökin fylgi einnig og jafnvel tillögur um baráttuaðferðir gegn því. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Kæra Katrín. Mig langar að spyrja um álit þitt og VG á máli sem nokkuð hefur verið til umfjöllunar og skiptir talsverðu máli frá ýmsum sjónarhóli. Undanfarið hefur viðskiptabann gagnvart Rússlandi, sem Ísland hefur tekið þátt í undir handarjaðri Evrópusambandsins, ratað á ný í fjölmiðla. Tilefnið er síðbúið andsvar Rússa sem hafa sett bann við innflutningi matvæla frá Íslandi og fleiri löndum. Útgerðarmenn og fiskútflytjendur bera sig illa og látið hefur verið í veðri vaka að þeirra hagsmunir séu einu rökin gegn viðskiptabanninu. Það sé borið uppi af óvéfengjanlegum málstað og andstaða gegn því feli í sér að selja sál sína fyrir peninga. Því er haldið fram að Rússar hafi brotið alþjóðalög í átökunum í Úkraínu og með innlimun Krímskagans. En málið er ekki svo einfalt. Hver er þá hinn raunverulegi málstaður að baki viðskiptabannsins gagnvart Rússlandi? Í febrúar 2014 var rétt kjörinn forseti Úkraínu, Viktor Janukovitsj, hrakinn frá völdum í valdaráni fasista, sem helstu máttarvöld Evrópusambandsins og Bandaríkjanna stóðu á bak við. Valdaránsstjórnin hóf feril sinn með því að afnema stöðu rússnesku sem opinbers tungumáls og ógna rússneskumælandi íbúum á margan hátt. En drjúgur hluti landsmanna er rússneskumælandi, sérstaklega í austurhéruðunum og á Krímskaga þar sem Rússar eru í verulegum meirihluta. Enda tilheyrði Krímskagi Rússlandi til ársins 1954 og innlimun hans í Úkraínu orkaði mjög tvímælis. Samkvæmt samningi frá uppskiptum Sovétríkjanna hafa Rússar haft aðstöðu fyrir flotastöð í Sevastopol á Krímskaga til að verja sig gegn flaugum NATO sem umkringja Svartahafið að mestu. Niðurstaðan er sú að málstaður viðskiptabannsins sé stuðningur við ólöglega valdatöku fasista í Úkraínu og óhefta útþenslu NATO og Evrópusambandsins. En áhrifin eru vaxandi spenna og hatur. Hér heima fer utanríkisráðherrann mikinn og heldur því fram að samstaða sé á Alþingi um viðskiptabannið gegn Rússlandi. Því langar mig að spyrja þig, Katrín, um afstöðu þína og þíns flokks til málsins og hvort þið styðjið viðskiptabannið eins og utanríkisráðherrann gefur í skyn. Ef svarið er já, óska ég eftir að helstu rök fyrir því fylgi með. Ef svarið er hins vegar nei er auðvitað gott að rökin fylgi einnig og jafnvel tillögur um baráttuaðferðir gegn því.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar