Frá því á föstudaginn hefur gengi hlutabréfa í tæknirisanum Apple hækkað um tæplega 12 prósent. Líklega má rekja þessa hækkun til velgengni nýja flaggskips Apple, iPhone 7 sem kynntur var þann 7. september.
Eins og Vísir hefur greint frá hefur snjallsíminn hefur verið mjög vinsæll í forpöntunum og hefur stærri útgáfa hans iPhone 7 Plus selst upp í forsölu. Ýmsar breytingar eru á nýja símanum, meðal annars er ekki lengur innstunga fyrir heyrnartól og eru fleiri nýjir litir í boði í svörtu sem skýra má áhuga viðskiptavinia.
Apple hefur hins vegar einnig notið góðs af því að nýjasti sími úr smiðu aðal samkeppnisaðila hans, Samsung, hefur átt í tæknilegum erfiðleikum þar sem hann hefur verið búinn tæknigalla sem hefur valdið sprengingu. Samsung hefur þurft að taka símann úr sölu og innkalla nokkrar milljónir síma. Þetta hefur leitt til verulegrar hækkunar hlutabréfa, í gær hafði markaðsvirði Apple aukist um 27 milljónir dala frá því á föstudaginn.
Hlutabréf í Apple rjúka upp

Tengdar fréttir

Klúður Samsung er himnasending Apple
Innköllun 2,5 milljóna snjallsíma Samsung kemur á besta tíma fyrir helsta keppinaut þeirra.

iPhone 7 selst eins og heitar lummur
Forpantanir eru fjórfalt fleiri en á síðasta ári í Bandaríkjunum.

iPhone 7 í verslanir í lok september
Nýr iPhone var kynntur þann 7. september og fer í alþjóðlega sölu 16. september.

iPhone 7 Plus uppseldur
Nýjasti sími Apple virðist fara vel af stað í sölu.