Starfsviðtali klúðrað Skjóðan skrifar 27. apríl 2016 10:00
Már Guðmundsson er bankastjóri Seðlabanka Íslands. Sem slíkur kemur hann reglulega á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að gefa skýrslur um stöðu mála og svara spurningum nefndarmanna. Á mánudaginn kom Már á fund nefndarinnar. Hann var krafinn svara um það hvers vegna peningastefnunefnd Seðlabankans heldur vöxtum jafn háum og raun ber vitni á sama tíma og verðbólga hefur í mörg misseri haldist í sögulegu lágmarki. Hann var einnig spurður að því hvers vegna húsnæðiskostnaður sé hafður inni í vísitölu hér en ekki erlendis og hvers vegna bankinn noti ekki frekar bindiskyldu en vaxtatækið í baráttu sinni við verðbólgu. Ef fyrir framan þingnefndina hefði setið umsækjandi um starf hagfræðings í Seðlabankanum eru engar líkur á að hann hefði verið ráðinn í starfið. Svo umfangsmikil voru undanvik frá spurningum og yfirgripsmikil fáfræðin. En þarna sat ekki nýútskrifaður hagfræðingur heldur seðlabankastjórinn sjálfur. Hann gat með engu móti gert grein fyrir því hvers vegna húsnæðiskostnaður er reiknaður inn í vísitölu hér á landi en ekki í öðrum löndum. Þessi spurning er þó áleitin sökum þess að hér á landi uppfærast höfuðstólar flestra neytendalána í takt við vísitöluna en slíkt tíðkast alls ekki í öðrum löndum. Seðlabankastjórinn sagðist hafa fengið uppáskrift Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á ágæti þess að stýrivextir hér eru mörg hundruð sinnum hærri en í sumum helstu nágrannalöndum okkar þó að verðbólgan sé á svipuðu róli hér og þar, alla vega ef notaðar eru áþekkar forsendur útreikninga. AGS er vitanlega ánægður með hina háu stýrivexti, sem skapa vaxtamunarviðskipti upp á tugi eða jafnvel hundruð milljarða, sem alla skal nota til að hleypa spákaupmönnum og kröfuhöfum, sem læstust inni með peningana sína á Íslandi í hruninu, út úr íslenska hagkerfinu. Hagsmunagæsla spákaupmanna og kröfuhafa er verkefni AGS. Hvernig borga á nýju snjóhengjuna í fyllingu tímans er annað mál. Sennilega verða vextirnir þá hækkaðir enn frekar með sérstakri blessun AGS. Fram kom á fundinum að seðlabankastjóri segist vita nákvæmlega hver áhrif vaxtabreytinga eru á hagkerfið en hefur litla hugmynd um áhrif bindiskyldu. Samt hefur verðbólguspá Seðlabankans verið kolvitlaus í mörg ár eða jafnvel áratugi. Hvernig má það vera ef Seðlabankinn veit upp á hár hver áhrif vaxtastefnu hans eru? Og, af hverju hefur bankastjórinn ekki hugmynd um áhrif breytilegrar bindiskyldu? Ber honum ekki að kynna sér þau tæki sem honum standa til boða í sínu mikilvæga starfi? Nýútskrifaður hagfræðingur að koma úr starfsviðtali hefði gert sér fulla grein fyrir því að hann klúðraði viðtalinu og fengi ekki starfið enda ætti hann ekkert erindi í það.
Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira