Vettel: Við getum unnið þessa keppni á morgun Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 27. ágúst 2016 15:00 Þrír hröðustu menn dagsins. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes náði sínum sjötta ráspól á árinu í dag. Belgíski kappaksturinn fer fram á morgun. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? „Helgin er búin að vera erfið. Okkur sárvantaði hraðann yfir einn hring. Æfingin í morgun var einkar erfið en það gerir ráspólinn bara sætari,“ sagði Rosberg eftir tímatökuna. „Það er erfitt að segja hvort ég hefði getað náð ráspól. Bíllinn er góður hér og það er gaman að sjá hversu nálægt við erum. Áhorfendur hér eru frábærir og veita mér auka kraft,“ sagði Max Verstappen sem ræsir annar á morgun. „Dagurinn fór eftir áætlun fyrir utan það þegar ég fór út af brautinni. Auvitað hefði verið gaman að ná ráspól sem mér fannst vera innan seilingar í dag,“ sagði Kimi Raikkonen sem ræsir þriðji á morgun. „Það er frábært að vera á fremstu rásröð hér. Keppnin verður spennandi á morgun vegna mismunandi dekkjaáætlanna. Ofurmjúku dekkin munu ekki endast eins lengi hjá Max Verstappen. Þetta verður virkilega spennandi á morgun. Ökumennirnir fengu að velja í morgun hvaða dekkjum þeir vilja ræsa á, á morgun,“ sagði Christian Horner, liðsstjóri Red Bull. „Við getum unnið þessa keppni á morgun. Það verður aðalatriðið á morgun að hugsa vel um dekkin. Í dag höfum við séð hversu lítið bilið er á milli efstu manna,“ sagði Sebastian Vettel sem ræsir fjórði á morgun á Ferrari bílnum. „Ég er ekki vonsvikinn. Max átti góðan hring. Mig vantaði þetta auka smáatriði til að ná fullkomnum hring í lokin. Ég er ánægður með að ræsa á mjúkum dekkjum á morgun. Max verður á ofurmjúkum og þetta var okkar val. Ég er vongóður um að eiga góða keppni á morgun,“ sagði Daniel Ricciardo sem ræsir fimmti á morgun á Red Bull bílnum. „Báðir bílarnir okkar voru að glíma við hugbúnaðarvandamál í tímatökunni. Þetta kostaði okkur um það bil tvo tíunu úr sekúndu. Við hefðum þá verið á undan Force India. Við verðum að vera bjartsýn fyrir morgundaginn,“ safði Rob Smedley, yfirmaður kappakstursmála hjá Williams.
Formúla Tengdar fréttir Rosberg og Verstappen fljótastir á föstudagsæfingum Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Max Verstappen á Red Bull varð fljótastur á seinni æfingu dagisins. 26. ágúst 2016 18:30 Hamilton færður aftur um 30 sæti í ræsingu Breytingar gerðar á vél heimsmeistarans eftir æfingar morgunsins í Belgíu. 26. ágúst 2016 17:30 Honda á tvær uppfærslur eftir á árinu Honda, japanski vélaframleiðandinn sem sér McLaren liðinu fyrir vélum í Formúlu 1 segist eiga eftir að uppfæra vélina tvisvar á árinu. Eftir það beinist athyglin að 2017. 23. ágúst 2016 20:00 Nico Rosberg á ráspól í Belgíu Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur í tímatöku dagsins fyrir belgíska kappaksturinn. Max Verstappen varð annar á Red Bull og Kimi Raikkonen á Ferrari þriðji. 27. ágúst 2016 13:05 Mest lesið Kemur dómaranefnd til varnar og hnýtir í Jón og tvíburana Körfubolti Svona var fundur KSÍ þegar Arnar tilkynnti landsliðshópinn Fótbolti Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Enski boltinn Arnar: Aðrir leikmenn framar en Jóhann Fótbolti Orri, Jóhann og Gylfi ekki með en Aron valinn Fótbolti Kaupa einn frægasta leikvang heims til þess að rífa hann Fótbolti Drama í sænska landsliðinu: „Hann hefur svikið liðsfélaga sína“ Fótbolti Sjáðu kinnhestinn sem felldi Liverpool og þrennu Mbappe Fótbolti Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Fótbolti Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Enski boltinn Fleiri fréttir Segir ákvörðunina þá erfiðustu sem hann hafi tekið Tekur marga milljarða með sér og gæti snúið aftur með öðru liði Verstappen vann og Piastri úr leik á fyrsta hring Verstappen á ráspól eftir skrautlega tímatöku Norris fljótastur á síðustu æfingu í Baku Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Verstappen á ráspól með hraðasta hring sögunnar Sjá meira
Rosberg og Verstappen fljótastir á föstudagsæfingum Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Max Verstappen á Red Bull varð fljótastur á seinni æfingu dagisins. 26. ágúst 2016 18:30
Hamilton færður aftur um 30 sæti í ræsingu Breytingar gerðar á vél heimsmeistarans eftir æfingar morgunsins í Belgíu. 26. ágúst 2016 17:30
Honda á tvær uppfærslur eftir á árinu Honda, japanski vélaframleiðandinn sem sér McLaren liðinu fyrir vélum í Formúlu 1 segist eiga eftir að uppfæra vélina tvisvar á árinu. Eftir það beinist athyglin að 2017. 23. ágúst 2016 20:00
Nico Rosberg á ráspól í Belgíu Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur í tímatöku dagsins fyrir belgíska kappaksturinn. Max Verstappen varð annar á Red Bull og Kimi Raikkonen á Ferrari þriðji. 27. ágúst 2016 13:05