Erlent vinnuafl streymir aftur til Íslands Sæunn Gísladóttir skrifar 20. apríl 2016 07:00 Fyrir hrun var eftirspurn eftir erlendu vinnuafli mest í byggingariðnaði en nú er hún mest í ferðaþjónustu. Fréttablaðið/Pjetur
Vegna vaxtar í ferðaþjónustu styttist í að hlutfall erlendra ríkisborgara af vinnuafli verði hærra en fyrir hrun. Þetta er mat Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun. Með hruninu dró úr þörf fyrir erlent vinnuafl. Hlutfall erlendra ríkisborgara af vinnuafli lækkaði úr tíu niður í átta prósent. Nú er hlutfallið milli níu og tíu prósent.Karl Sigurðsson„Störfum fór að fjölga árið 2012 og síðan hefur orðið mikil aukning. Til urðu sex þúsund ný störf 2015 og stefnir í jafn mörg störf 2016,“ segir Karl. Munur á náttúrulegri fjölgun á vinnumarkaði og fjölda nýrra starfa nemur tveimur til þremur þúsundum. „Fólk á atvinnuleysisskrá dekkar hluta af þessu og gerir enn þó að ekki sé mikið þar að hafa í framtíðinni. Síðan hefur atvinnuþátttaka aðeins verið að aukast. Þó má áætla að sá tími sé að koma að við þurfum tvö til þrjú þúsund erlenda starfsmenn á ári,“ segir Karl. Eftirspurnin fyrir hrun var örari og snerist um byggingariðnaðinn og fór í aðrar greinar út frá því. Fyrst og fremst komu karlmenn að sögn Karls. „Þetta er miklu hægara núna, er tengt ferðaþjónustu að mestu leyti og nú koma bæði konur og karlar. Það hefur þó verið vaxandi eftirspurn eftir erlendu vinnuafli í byggingariðnaði í lok síðasta árs og í ár,“ segir Karl.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 20. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Fleiri fréttir Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík Sjá meira