Varað við stormi á Vestfjörðum Samúel Karl Ólason skrifar 18. desember 2016 10:44 Á þriðjudaginn hlýnar hins vegar aftur um skeið þegar mjög djúp lægð fer norðaustur yfir landið með vonskuveðri og rigningu eða slyddu. Vísir/Vilhelm
Veðurstofa Íslands varar við stormi á Vestfjörðum í kvöld og á morgun. Á þriðjudaginn er svo aftur von á stormi víðar um landið. Þá mun kólna hér á landi í vikunni og þykir ekki ólíklegt að jörðin verði hvít um jólin. Stormurinn sem spáð er í kvöld mun ekki standa lengi yfir, en honum fylgja skúrir og síðar él. Á morgun er spáð suðvestan hvassviðri eða stormi og hvassast um landið norðvestanvert. Þá er éljagangi spáð sunnan- og vestantil á landinu. Á þriðjudaginn hlýnar hins vegar aftur um skeið þegar mjög djúp lægð fer norðaustur yfir landið með vonskuveðri og rigningu eða slyddu. Ef spár ganga eftir. Snjókoma er víða í kortunum eftir helgi en ekki er fullvíst að snjórinn muni halda fram að jólum. Þá er von á hlýnun eftir jól.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan 18-23 A-lands um morguninn, annars talsvert hægari. Víða rigning eða slydda, hiti 1 til 7 stig. Vestan og suðvestan 18-25 m/s með skúrum eða éljum síðdegis, fyrst S-lands, en norðlægari og snjókoma NV-til. Kólnandi veður. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og víða él. Frost 0 til 8 stig, kaldast N-lands. Á fimmtudag: Suðvestanátt og él, en yfirleitt þurrt á N- og A-landi. Áfram fremur kalt í veðri. Á föstudag: Snýst í vaxandi austan- og síðar norðaustanátt með snjókomu SA-lands síðdegis. Hvassviðri og slydda eða snjókoma um kvöldið, einkum á A-verðu landinu. Minnkandi frost og hlánar á SA-landi og við A-ströndina um kvöldið. Á laugardag: Norðlæg átt og úrkomulítið S-til á landinu. Annars víða snjókoma, en slydda eða rigning við NA-ströndina.
Veður Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Sjá meira