Í samræmi við evrópskt regluverk Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. mars 2015 14:00 Fyrstu umræðu um frumvarp um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki er lokið. Frumvarpið er núna í nefnd. Ákvæði í frumvarpinu sem lúta að breytilegum starfskjörum taka mið af evrópsku regluverki. „
Þarf þessa kaupauka yfirhöfuð? Hvað er svona sérstakt við störf í þessari grein að það þurfi kaupauka. Af hverju þurfa starfsmenn í bönkum frekar bónusa en kennarar, hjúkrunarfræðingar eða læknar?“ spyr Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, vegna frumvarps um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem nú liggur fyrir Alþingi. Í 25. og 26. grein frumvarpsins er kveðið á um heimildir Fjármálaeftirlitsins til þess að setja reglur um breytileg starfskjör, eða kaupauka. Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að fyrirmyndir slíkra reglna séu mun mótaðri en ætla mætti í fyrstu því að Fjármálaeftirlit Evrópusambandsins (EBA) sem Fjármálaeftirlitið hefur áheyrnaraðild að hafi gefið út tæknistaðla og birt drög að leiðbeiningum um framkvæmd viðkomandi ákvæða í svokallaðri CRDIV-tilskipun. Fyrrnefnd ákvæði í frumvarpinu taka að miklu leyti mið af þeirri vinnu.Steingrímur J. Sigfússon Myndir af þinginu AlþingiSamkvæmt lögum sem samþykkt voru frá Alþingi árið 2010 var fyrirtækjum gert heimilt að greiða kaupauka að hámarki 25 prósent af föstum launum. Í tilskipun Evrópusambandsins er aftur á móti gert ráð fyrir að kaupauki geti verið 100 prósent af föstum launum og hluthafafundur geti samþykkt að hækka það upp í 200 prósent. Steingrímur segist feginn því að frumvarpið sem liggur nú fyrir Alþingi geri ekki ráð fyrir því að hækka þetta þak. Stjórnvöld hafa svigrúm til þess að fylgja ekki tilskipun EBA varðandi þetta atriði og setja strangari reglur. Geri þau það ekki munu þau hins vegar þurfa að skýra fyrir þeim hvers vegna. Steingrímur segir það þó misráðið að samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að einungis tilteknir lykilstjórnendur og þeir sem geti komið að ákvarðanatöku eigi rétt á kaupauka. „Þannig að þetta verður ekki bara þak yfir alla starfsmenn fjármálafyrirtækja eins og hefur verið og er. Eins finnst mér það líka ámælisvert að þeir sem sinna innra eftirliti og regluvörslu inni í bönkunum geta farið yfir á kaupauka samkvæmt þessu, en í gildandi lögum er það bannað,“ segir Steingrímur. Um þessa síðustu athugasemd Steingríms segir Jón Þór: „Menn geta haft sínar skoðanir á því hvort það sé heppilegt eða ekki en þetta er aðlögun að evrópsku regluverki.“Jón Þór SturlusonÞá segir Jón Þór að Fjármálaeftirlitið líti það jákvæðum augum að í regluverki EBA hefur verið betur lýst hvernig skuli horfa á mismunandi form af kaupauka. „Þarna er farið vel yfir sviðið og reynt að samræma framkvæmdina út frá því hvaða form af umbun er verið að veita. Hvort það sé í formi kaupréttar, eða einhvers konar hlutabréfaeignar, eða annarra bónusa sem fylgja einhvers konar reikniformúlu og svo framvegis. Það á ekki að vera grundvallarmunur á meðferðinni,“ segir Jón Þór. Þá séu í regluverki EBA ákvæði um frestun á greiðslum bónusa. Útgreiðslu á ákveðnum hluta kaupauka verður að fresta í þeim tilgangi að skapa ekki of sterka skammtímahvata. „Það verður að vera komin reynsla á það að viðkomandi grundvöllur bónussins sé viðvarandi,“ segir Jón Þór.
Alþingi Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira