Viðskipti innlent

Krefur Vodafone um 90 milljónir í skaðabætur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Árásin átti sér stað í nóvember 2013.
Árásin átti sér stað í nóvember 2013. MYNDIR/DANÍEL
Vodafone á Íslandi, Fjarskiptum hf., hefur borist stefna þar sem gerð er krafa um bætur vegna tjóns sem einstaklingur telur sig hafa orðið fyrir vegna innbrotsþjófnaðar erlends tölvuhakkara á heimasíðu Vodafone í nóvember 2013.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Tyrkneskur tölvuþrjótur hakkaði sig inn á vef Vodafone á sínum tíma, og náði í mjög viðkvæmar persónuupplýsingar um notendur fyrirtækisins. Hann birti síðar upplýsingarnar á netinu, meðal annars persónuleg SMS á milli fólks og lykilorð af tölvupóstföngum.

Fram kemur í tilkynningunni frá Vodafone að einstaklingurinn fer fram á 90 milljóna skaða- og miskabætur auk vaxta og málskostnaðar en þetta er önnur stefnan sem fyrirtækið fær á sig vegna innbrotsins.

Sjá einnig: Undirbúa hópmálssókn á hendur Vodafone

„Sem fyrr telur félagið verulegan vafa leika á bótaskyldu og að dæmdar fjárhæðir, telji dómstólar bótaskyldu yfir höfuð til staðar, hafi í öllu falli óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Fyrir liggur að stefnufjárhæð er í engu samræmi við dómafordæmi í skaða- og miskabótamálum hér á landi. Gerð verður grein fyrir þessari og mögulegum frekari málshöfðunum í skýringum ársfjórðungsuppgjöra eða eftir því sem við getur átt,“ segir í tilkynningu Vodafone. 


Tengdar fréttir

Breytið lykilorðum ykkar

Vodafone beinir því til allra sem stofnað hafa aðgang að Vodafone.is að breyta lykilorðum sínum að tölvupósti og samfélagsmiðlum.

Undirbúa hópmálssókn á hendur Vodafone

Málsóknarfélag vegna leka af vef Vodafone þann 30. nóvember 2013 birtir í dag auglýsingu í Fréttablaðinu þar sem kemur fram tilkynning um undirbúning á hópmálssókn á hendur Vodafone vegna upplýsingaleka af vef félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×