Kynfræðingar ekki kátir með kynlífspillu Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 31. ágúst 2015 07:30 Lyfið, sem á að auka kynhvört kvenna, kemur fljótlega á markað.
Ný pilla, Addyi, sem á að auka kynlöngun kvenna kemur á markað í Bandaríkjunum á næstunni. Ólíkt Viagra, stinningarlyfi fyrir karlmenn, virkar pillan á huglæga þætti en ekki líffræðilega og er því um margt skylt geðlyfi. Alexander Smárason, yfirlæknir kvennadeildar sjúkrahússins á Akureyri, segir minnkandi kynhvöt alls ekki óalgengt kvörtunarmál kvenna sem koma til kvensjúkdómalækna. „Þær spyrja hvort það sé hægt að gera eitthvað, en í raun er ekki mikið um töfralausnir. Það hafa verið til plástrar og vefjahylki sem auka testósterón en hvorugt fæst á íslenskum markaði. Það þarf að hafa í huga að svo margt getur valdið minnkandi kynhvöt,“ segir Alexander. Áslaug Kristjánsdóttir kynlífsráðgjafi segir lyfjameðferð við minnkandi kynlöngun ofureinföldun á flóknu vandamáli enda verði minnkuð kynlöngun sjaldan til í tómarúmi og sé yfirleitt sambandsvandamál. „Kynlöngun er afstætt hugtak og afar persónubundin. Það er eðlilegt að kynlöngun okkar flökti, sé stundum mikil og stundum lítil. Það eru ótal utanaðkomandi þættir sem hafa þar áhrif, svo sem stress, barneignir og ánægja í sambandi,“ segir Áslaug en fagnar því hins vegar að kynlífsvandi kvenna fái umræðu. „Þrátt fyrir það tel ég ekki að lausnin sé fundin og í raun að það sé verið að leita á röngum stað, út frá gróðasjónarmiði frekar en öðru.“ Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur hefur kynnt sér lyfið og líst ekki sérlega vel á það. „Niðurstöður rannsókna sýna að tíðni ánægjulegs kynlífs fór úr hálfu skipti í eitt skipti á mánuði. Ánægjulegt, ekki endilega fullnægjandi. Fyrir hvern er verið að gera þetta? Fyrir manninn eða konuna?“ spyr Sigríður Dögg. Spurð hvort lyfið verði þá nokkuð eftirsótt af konum segir Sigríður Dögg að hætta sé á að búin verði til ímynduð þörf og aukin pressa á frammistöðu kvenna eins og gerst hefur með Viagra hjá karlmönnum. „Nemandi í 10. bekk sagði mér fyrir nokkru að hann hefði fengið uppáskrifað Viagra hjá lækninum sínum því hann náði honum ekki upp með kærustunni. Svo kom í ljós að ástæðan var tilfinningalegs eðlis.“ Sigríður Dögg segir vandamál kvenna aðallega felast í því að þær þekki ekki sinn eigin líkama nógu vel. „Konur þurfa að stunda sjálfsfróun, þekkja fantasíur sínar og það sem kveikir í þeim. Einnig þurfa þær að gera kröfu um fullnægingu og unað í kynlífi og því er minnkandi kynlöngun oft vandamál sambandsins, ekki bara konunnar. Fyrir utan að það er líka alveg í lagi að hafa litla eða enga kynhvöt ef maður er sáttur við það.“
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ Innlent Fleiri fréttir Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Sjá meira