Durant sneri aftur með látum | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. janúar 2015 11:10
Kevin Durant sneri aftur eftir sex leikja fjarveru vegna meiðsla og skoraði 44 stig er Oklahoma City hafði betur gegn Phoenix í framlengdum leik, 137-134. Durant hefur verið að glíma við ökklameiðsli en hann nýtti þrettán af 23 skotum sínum í leiknum og öll tólf vítaskotin sín. Hann var líka með tíu fráköst og sjö stoðsendingar. Russell Westbrook fékk tvær tæknivillur með skömmu millibili seint í fyrri hálfleik og var því vísað af velli. Hann skoraði þó 20 stig í leiknum en stigahæstur hjá Phoenix var Eric Bledsoe með 29 stig. San Antonio vann New Orleans, 95-93, þar sem Manu Ginobili skoraði 26 stig - þar af sjö í framlengingu. New Orleans komst mest sex stigum yfir í framlengingunni en meistararnir höfðu að lokum betur. Tim Duncan var með sextán stig og tíu fráköst og náði þar með sinni 814. tvöföldu tvennu á ferlinum. Þar með jafnaði hann árangur Karl Malone en aðeins fjórir leikmenn eiga fleiri tvöfaldar tvennur í sögu NBA-deildarinnar. Tyreke Evans virtist hafa tryggt New Orleans sigur þegar 0,7 sekúndur voru eftir en Duncan náði að skora eftir að hafa stýrt innkasti Boris Diaw rétta leið rétt áður en leiktíminn rann út. Milwaukee vann Cleveland á útivelli, 98-80. Sigurinn var öruggur en LeBron James missti af sínum öðrum leik í röð vegna hnémeiðsla. Kevin Love var einnig frá vegna meiðsla en Cleveland hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum. Houston vann Charlotte, 102-83, eftir að hafa tapað tveimur leikjum í röð. James Harden var með 36 stig.Úrslit næturinnar: Boston - Sacramento 106-84 Indiana - Miami 106-95 LA Clippers - New York 99-78 Houston - Charlotte 102-83 Cleveland - Milwaukee 80-96 San Antonio - New Orleans 95-93 Oklahoma City - Phoenix 137-134
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira