Búist við skorti á mjólkurfræðingum Sveinn Arnarsson skrifar 24. október 2015 07:00 Mjólkurfræðingum, sem nú eru 96 talsins, gæti fækkað umtalsvert á næstu árum. vísir/pjetur
Svo gæti farið að innan nokkurra ára verði skortur á mjólkurfræðingum á Íslandi. Enginn Íslendingur er nú við nám í mjólkurfræði og aðeins þrír mjólkurfræðingar hafa útskrifast frá árinu 2011. Landbúnaðarráðherra hefur miklar áhyggjur af stöðunni og telur eðlilegt að hlutast til um málið. Flestir íslenskir mjólkurfræðingar hafa numið greinina í Óðinsvéum en eftir að Danir gerðu útlendingum erfitt að sækja námið hefur enginn sótt nám í skólanum. Meðalaldur mjólkurfræðinga á Íslandi er um 50 ár og margir þeirra eru við það að fara á eftirlaun. Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra er áhyggjufullur yfir stöðunni. „Eftir að mér var greint frá stöðu mála hef ég verið að kanna þetta og ef fram heldur sem horfir gætum við horft upp á skort á mjólkurfræðingum í nánustu framtíð. Ég hef verulegar áhyggjur af stöðunni og tel að við þurfum að skoða þetta ofan í kjölinn til að tryggja að íslenskt þjóðfélag eigi nægilegan fjölda mjólkurfræðinga,“ segir Sigurður Ingi.Sigurður Ingi JóhannssonFræðslunefnd mjólkuriðnaðarins hefur ekki verið starfandi frá því í febrúar á þessu ári og ný nefnd hefur ekki verið skipuð hjá menntamálaráðherra. Menntamálaráðherra sagði í þingræðu þann 20. október 2014 að hann hefði átt samtal við dönsk yfirvöld vegna málsins. „Ég átti ágæta fundi með danska menntamálaráðherranum í sumar þar sem við ræddum meðal annars breytingar á starfsnámi hjá Dönum. Fyrirhuguð er ferð til Danmerkur til þess að grafast fyrir um þær lausnir sem þeir hafa fundið.“ Nú ári seinna virðast ekki vera breytingar í farvatninu.Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður FramsóknarflokksinsJóhanna María Sigmundsdóttir er forsvarsmaður þingsályktunartillögu sem nú liggur fyrir þinginu um að fela menntamálaráðherra að ráðast í endurskoðun á tilhögun náms í mjólkurfræði þannig að tryggt verði að íslenskir nemendur komist að í slíku námi. „Eins og staðan er núna er þetta grafalvarlegt. Mjólkurfræðingar vinna í brugghúsum og í sælgætisiðnaði svo dæmi séu tekin svo þetta er mikilvæg iðngrein. Ef fram heldur sem horfir mun verða mikil vöntun á íslenskum mjólkurfræðingum mjög fljótlega,“ segir Jóhanna María.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira