Ekið á tvö börn á sömu gatnamótum á árinu 24. október 2015 07:00 Hætta þykir stafa af gatnamótum Hofsvallargötu og Hringbrautar. Borgarfulltrúa greinir á um leiðir til þess að bæta úr. Fréttablaðið/Stefán
Slys Foreldrar í Vesturbæ Reykjavíkur segja í opnum Facebook-hóp að gatnamót Hofsvallagötu og Hringbrautar séu óásættanleg og eru uggandi um öryggi barna sinna. Í síðustu viku var keyrt á tíu ára gamlan dreng með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði og í janúar varð litlu eldri drengur fyrir sendibíl á sama stað. „Maður sér það miðað við slysaskráningu að þetta er einn hættulegasti staður borgarinnar fyrir óvarða vegfarendur. Ég hef lengi talið að það þurfi að grípa til aðgerða til að bæta þar úr. Eitt af því sem ég hef velt fyrir mér og látið skoða er að þess verði freistað að setja þarna algjörlega örugga leið. Annaðhvort með undirgöngum eða göngubrú,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Kjartan segir það þó ekki auðvelt vegna þrengsla en segir það hafa verið gert við svipaðar aðstæður með góðum árangri. „Þetta er ekki hin fullkomna lausn sem bjargar öllu en með þessari lausn væri búið að tryggja örugg göngutengsl yfir Hringbraut.“ Hjálmar Sveinsson, formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, á von á því að umræða um gatnamótin verði á dagskrá á næsta fundi ráðsins. Hann segir lausn Kjartans þó ekki skynsamlega. „Bæði er mjög þröngt þarna auk þess sem það mun ekki koma í veg fyrir að fólk fari yfir götuna. Við teljum að fólk muni ekki taka mjög langan krók til að komast í undirgöng eða yfir brú,“ segir Hjálmar. Hann segir mikinn árangur hafa náðst undanfarin ár í að fækka slysum, helst með því að lækka hámarkshraða. „Það hefur oft verið talað um að lækka hámarkshraðann niður í þrjátíu en það þarf að gerast í samstarfi við Vegagerðina og lögreglu.“ „Þegar borgin hefur viljað lækka hefur það gerst að lögreglan hefur sagt nei og segir ástæðuna þá að gatan hafi yfirbragð götu þar sem keyra má hraðar. Mér finnst þetta algjörlega óþolandi viðbrögð en þetta hafa verið viðbrögðin engu að síður,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, fyrrverandi borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður hverfisráðs Vesturbæjar. Gísli segir málið hafa verið rætt á meðan hann gegndi formennsku. „Eina leiðin sem eitthvert vit er í er að endurhanna götuna sem rólega innanhverfisgötu eins og gert var við Hofsvallagötu með mjög góðum árangri. Hraði þar hefur verið lækkaður verulega og engar umferðarteppur hafa myndast,“ segir Gísli. Hann er ekki hrifinn af þeirri hugmynd að byggja brú eða grafa undirgöng. „Það er arfavitlaus hugmynd sem á rætur að rekja til sjöunda áratugarins er menn vildu aðgreina alla umferð. Einhverjir vilja enn vinna eftir þeim hugmyndum en þær eru úreltar. Börn munu áfram fara yfir götuna þar sem þau koma að henni.“ thorgnyr@frettabladid.is vísir/stefánvísir/vilhelm
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira