Gefur lítið fyrir svör Landsbankans Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 19. ágúst 2015 23:20
Bankaráð Landsbankans hafnaði í dag beiðni Vestmannaeyjabæjar um boðun hluthafafundar til að ræða byggingu nýrra höfuðstöðva. Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar gefur lítið fyrir svör bankans og segir hann sneiða hjá því að svara spurningum sveitarfélagsins um málið. Vestmannaeyjabær eignaðist lítinn hlut í Landsbankanum við sameiningu bankans og Sparisjóðs Vestmannaeyja í mars. Í bréfi sem bærinn sendi bankaráði Landsbankans 29. júlí síðastliðinn var annars vegar farið fram á gögn sem tengjast fyrirhuguðum framkvæmdum bankans við nýjar höfuðstöðvar hans í miðbæ Reykjavíkur. Hins vegar var óskað eftir hluthafafundi hjá bankanum til að fara yfir málið. Landsbankinn svaraði bréfi Vestmannaeyjabæjar í gær. Varðandi fyrra atriðið telur bankinn ekki vera forsendur fyrir því að verða við ósk einstakra hluthafa um sérstakan aðgang að gögnum um málið. Um seinna atriðið vísar bankinn til þess að fyrirhugaðar framkvæmdir séu til skoðunar innan bankans og hann hyggist gera grein fyrir afstöðu sinni áður en langt um líður. Að svo komnu máli sé ekki ástæða til eða tímabært að fjalla um fyrirhugaðar framkvæmdir á sérstökum hluthafafundi. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum gefur lítið fyrir svör bankans og segir hann sneiða hjá því að svara spurningum sveitarfélagsins um hvernig bankinn komst að þeirri niðurstöðu að byggja höfuðstöðvar á dýrustu lóð á landinu. „Þá tel ég bara eðlilegast að þessi banki okkar landsmanna birti einfaldlega öll gögn þessu tengd á vefsíðu sinni og svari þessum spurningum sem til þeirra hafi verið beint og geri þetta opinbert fyrir alla eigendur sem eru landsmenn allir,“ segir Elliði.
Tengdar fréttir Hönnunarkeppni um nýbyggingu Landsbanka frestað Sjónarmið sem komið hafa upp á síðustu vikum varðandi bygginguna eru ástæða þess að keppninni er frestað. 7. ágúst 2015 16:01 Kostnaðarsöm frestun uppbyggingar á Hörpu-reitnum Reykjavíkurborg verður af tugum ef ekki hundruðum milljónum króna í fasteignagjöld frestist framkvæmdir á Hörpu-reitnum til lengri tíma. 9. ágúst 2015 20:30 Borgaryfirvöld vilja að nýjar höfuðstöðvar rísi á Hörpureitnum Formaður borgarráðs Reykjavíkur segir ekki eftirsóknarvert að Hörpureiturinn standi tómur um ókomna tíð, verði fallið frá áformum um að byggja nýjar höfuðstöðvar Landsbankans á svæðinu. Borgin vilji sjá nýjar höfuðstöðvar rísa á reitnum. 10. ágúst 2015 13:08 Óhagstætt að leigja í Reykjavík samanborið við nágrannaborgir Leiguverð hefur fylgt þróun söluverðs náið síðustu ár. 10. ágúst 2015 12:01 Landsbankinn íhugar að hætta við byggingu höfuðstöðva Hönnunarsamkeppni um fyrirhugaða byggingu höfuðstöðva Landsbankans í miðbæ Reykjavíkur átti að hefjast síðar í þessum mánuði en hefur verið frestað. 8. ágúst 2015 19:50 Mest lesið Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Sjá meira
Hönnunarkeppni um nýbyggingu Landsbanka frestað Sjónarmið sem komið hafa upp á síðustu vikum varðandi bygginguna eru ástæða þess að keppninni er frestað. 7. ágúst 2015 16:01
Kostnaðarsöm frestun uppbyggingar á Hörpu-reitnum Reykjavíkurborg verður af tugum ef ekki hundruðum milljónum króna í fasteignagjöld frestist framkvæmdir á Hörpu-reitnum til lengri tíma. 9. ágúst 2015 20:30
Borgaryfirvöld vilja að nýjar höfuðstöðvar rísi á Hörpureitnum Formaður borgarráðs Reykjavíkur segir ekki eftirsóknarvert að Hörpureiturinn standi tómur um ókomna tíð, verði fallið frá áformum um að byggja nýjar höfuðstöðvar Landsbankans á svæðinu. Borgin vilji sjá nýjar höfuðstöðvar rísa á reitnum. 10. ágúst 2015 13:08
Óhagstætt að leigja í Reykjavík samanborið við nágrannaborgir Leiguverð hefur fylgt þróun söluverðs náið síðustu ár. 10. ágúst 2015 12:01
Landsbankinn íhugar að hætta við byggingu höfuðstöðva Hönnunarsamkeppni um fyrirhugaða byggingu höfuðstöðva Landsbankans í miðbæ Reykjavíkur átti að hefjast síðar í þessum mánuði en hefur verið frestað. 8. ágúst 2015 19:50