Honda ætlar að mæta með talsvert mikið uppfærða vél til Belgíu um helgina. Honda vonast til að hún jafnist nú á við Ferrari vélina.
Deildarstjóri kappakstursdeildar Honda, Yasuhisa Arai segir að gjörbreytt vélarblokk, loftintök og pústkerfi muni auka afl vélarinnar til muna.
Gert er ráð fyrir að Honda noti flesta eða alla uppfærsluskammta sína í þessa uppfærslu. Í kjölfarið færist áhersla þróunardeildanna yfir á næsta ár.
„Síðasta uppfærslan kemur á Spa í ár, litlar fínstillingar munu fylgja í kjölfarið,“ sagði Arai.
„Mk3 (nýjasta Honduvélin) mun líta dagsins ljós á Spa, við höfum þegar hafið þróun vélarinnar fyrir næsta ár,“ bætti Arai við.
„Mk4 mun vera á standa jafnfætis Mercedes vélinni, það er markmiðið; Mk3 verður á svipuðum slóðum og Ferrari vélin, þar setjum við markið. Það er stórt skref,“ sagði Arai.
Arai segist telja að vélin hafi hingað til ekki fengið að njóta sín til fulls. Hann telur hana betri en Renault vélina en að undirvagn bílsins sé ekki nógu góður.
Gæti verið að sprunga sé að koma í samstarf McLaren og Honda sem hingað til hefur virst skothelt?
Nei sennilega ekki, þetta er í takt við orð annarra úr herbúðum beggja aðila. Það hefur verið umtalsefni frá upphafi að báðir aðilar þurfi að bæta sig.

