Starfsmenn Símans fái kauprétt á hlutabréfum í fyrirtækinu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. ágúst 2015 13:24 Höfuðstöðvar Símans. Vísir/Vilhelm Gunnarsson
Stjórn Símans mun leggja til á næsta hluthafafundi að starfsmenn Símans fái tækifæri til þess að eignast hlut í Símanum eftir að hann fer á markað. Stefnt er að skráningu Símans á Aðalmarkað Nasdaq Iceland í haust. Samkvæmt tilkynningu frá Símanu munu starfsmenn Símans geta fest sér hlutabréf og kosið að innleysa þau að ári eða framlengja kaupréttinn til allt að fimm ára verði tillagan samþykkt. Valréttaráætlunin mun ná til allra fastráðinna starfsmanna Símans hf. og dótturfélaga annarra en Mílu. Starfsmenn geta á þessum fimm árum tryggt sér bréf fyrir allt að sex hundruð þúsund krónur árlega, í samræmi við heimild í skattalögum. Starfsmenn Mílu eru undanskildir þar sem samkomulag við Samkeppniseftirlitið tryggir rekstrarlegt sjálfstæði Mílu ehf. á allan hátt. „Valrétturinn á að auka virði félagsins til lengri tíma litið“Orri Hauksson, forstjóri Símans.Vísir/Vilhelm Gunnarsson„Markmiðið með valréttaráætluninni er að samþætta hagsmuni starfsmanna samstæðunnar við langtímamarkmið Símans, auka tryggð starfsfólks og langtímahugsun. Gangi félaginu fjárhagslega vel má vænta þess að verð hlutabréfa hækki og munu starfsmennirnir þá njóta þess,“ segir Orri Hauksson forstjóri Símans um tillögu stjórnarinnar: „Með fimm ára fyrirkomulaginu er girt fyrir áhættusækni til skamms tíma. Valrétturinn á að auka virði fyrirtækisins til lengri tíma litið og gera það að eftirsóttari fjárfestingu og framúrskarandi vinnustað.“ Fyrr í dag var tilkynnt um að hópur erlendra og innlendra fjárfesta hefði keypt 5% hlut í Símanum af Arion banka. Stefnt er að skráningu Símans í kauphöll í haust.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira