Viðskipti innlent

Finnst skemmtilegast að elda indverskan mat

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sunna segist alltaf hafa haft áhuga á vísindum og umhverfismálum.
Sunna segist alltaf hafa haft áhuga á vísindum og umhverfismálum. vísir/valli
Sunna Valgerðardóttir, fréttamaður á RÚV, ákvað á dögunum að skipta um starfsvettvang og hefja störf hjá Orkuveitu Reykjavíkur. „Ég hafði þörf fyrir að breyta til og takast á við nýjar áskoranir,“ segir hún.

Sunna segist alltaf hafa verið áhugamanneskja um orkumál. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á vísindum og umhverfismálum og eftir að ég byrjaði í fréttamennsku áttaði ég mig alltaf betur og betur á mikilvægi þessa málaflokks og þeim tækifærum sem standa Íslandi til boða bæði innanlands sem utan,“ segir hún.

Nýja starfið hennar Sunnu felst í samskiptum, bæði innan fyrirtækisins og utan, og samskiptum við fjölmiðla. „Ég verð talsmaður bæði Orkuveitunnar og dótturfélaga Orkuveitunnar. Svo sé ég líka um uppsetningu á grafík og hönnun og fleira,“ segir Sunna.

Aðspurð segir hún að það muni örugglega koma að því að hún sakni blaðamennskunnar. „En það er gott. Það er gott að fara glöð,“ segir hún.

Helstu áhugamál Sunnu eru matur, garðyrkja, ferðalög og breskir sakamálaþættir. „Mér finnst ægilega gaman að elda og líka ægilega gaman að láta elda fyrir mig,“ segir hún. Aðspurð hvort sé skemmtilegra segir hún að það sé skemmtilegra að elda sjálf og skemmtilegast að elda indverskan mat. Hún segist vera þekkt í tveimur landshlutum fyrir hæfni sína í eldamennsku á indverskum mat – Suður- og Norðurlandi.

Spurð út í skemmtilegustu staði sem hún hafi ferðast til segir Sunna að það séu Síle og Fnjóskadalur, en fallegasti staðurinn sé Ásbyrgi. „Ég hef bara einu sinni farið að gráta út af fegurð náttúrunnar og það var í Ásbyrgi,“ segir Sunna.

Sunna á son sem heitir Úlfur Bjarni Tulinius og saman eiga þau páfagaukinn Birgittu. Nafnið er heldur óvenjulegt fyrir þær sakir að fuglinn er karlfugl. Sambýlismaður Sunnu er Kolbeinn Óttarsson Proppé blaðamaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×