Innlent

Vandanum verður eytt með samningum við kröfuhafana

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra  og Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynntu afstöðu sína til undanþágubeiðna slitabúanna á fundi í Hannesarholti í gær.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynntu afstöðu sína til undanþágubeiðna slitabúanna á fundi í Hannesarholti í gær. Fréttablaðið/GVA
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að fallast á undanþágubeiðnir kröfuhafa föllnu viðskiptabankanna þriggja frá gjaldeyrishöftum. Slík undanþága er forsenda þess að hægt sé að slíta búunum. „Seðlabankinn telur að með þessari aðferðarfræði sé vandinn leystur og það er af þeirri ástæðu sem ég hef kynnt efnahags- og viðskiptanefnd að ég styðji það að slita­búum verði gert kleift að ganga til nauðasamninga og leysa málin með stöðugleikaframlaginu,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, á fundi með blaðamönnum í gær. Á fundinum var kynnt afstaða Seðlabankans og ráðherra kynnt.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri greindi frá því á blaðamannafundinum að aðgerðir, sem ráðist yrði í til að uppfylla stöðugleikaskilyrðin vegna undanþáganna, næmu hið minnsta 856 milljörðum króna. Þar af er stöðugleikaframlag til stjórnvalda sem mun nema að minnsta kosti rétt tæplega 500 milljörðum króna. Lánafyrirgreiðslur sem stjórnvöld veittu nýju bönkunum árið 2009 eru greiddar til baka og nema þær greiðslur 74 milljörðum króna. Langtímafjárfestingar kröfuhafa í íslenska hagkerfinu nema svo 226 milljörðum.

Seðlabankastjóri sagði að með þessum aðgerðum yrði greiðslujafnaðar­áhrifum algerlega eytt og rétt rúmlega það því að vandinn væri ekki nema 815 milljarðar króna. Vegna aðgerðanna yrði því 41 milljarðs króna afgangur sem yrði nýttur til að styrkja gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans. Og seðlabankastjóri sagði að aðgerðirnar hefðu fleiri jákvæð áhrif.

„Hrein skuldastaða þjóðarbúsins lækkar úr tæplega þriðjungi af landsframleiðslu í ár í undir tíu prósent á næsta ári,“ sagði Már. Hann benti á að það væri þó ekki allt vegna þessa uppgjörs. Gert væri ráð fyrir að landsframleiðslan myndi aukast og búist væri við viðskiptaafgangi.

„Þetta er lægsta skuldastaða síðan á síldarárunum á sjöunda áratug síðasta aldar,“ sagði Már.

Stöðugleikaskilyrðin fela líka í sér að slitastjórnir, fyrir hönd kröfuhafa, munu samhliða nauðasamningi afhenda yfirlýsingar þar sem íslensk stjórnvöld eru leyst undan allri ábyrgð. Þetta varðar allt sem snertir slitaferlið, tilvist fjármagnshafta, stöðugleikaskilyrðin, undanþáguveitingar og fyrirhugaða nauðasamninga.

Þegar stöðugleikaskilyrðin voru kynnt í júní var gert ráð fyrir að nauðasamningar yrðu kláraðir fyrir áramót, ellegar yrði stöðugleikaskattur lagður á. Einungis tveir mánuðir eru eftir af árinu og ólíklegt að sá tímarammi sem áætlaður var muni halda.

Eftir að Bjarni Benediktsson hefur tilkynnt Seðlabankanum formlega afstöðu sína munu slitabúin fá málið á sitt borð. Þau munu þá ljúka gerð nauðasamninga og fara með þá fyrir dómstóla til endanlegrar afgreiðslu.

„Og því er ekki að neita að við höfum nokkrar áhyggjur af því á þessari stundu að dómstólarnir verði settir í talsverða tímaþröng til að taka til meðferðar og afgreiðslu þessi stærstu slitabú Íslandssögunnar,“ sagði Bjarni. Það væri því eðlilegt að veita viðbótarfresti til þess að ljúka ferlinu. „Þó ekki væri nema til þess að dómstólar fengju sanngjarnan og hæfilegan tíma til að vinna sitt verk eftir að slitabúin hafa komist að sinni niðurstöðu,“ sagði Bjarni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×