Hæsta gildi Væntingavísitölunnar í tæp 8 ár Sæunn Gísladóttir skrifar 29. október 2015 11:00 Einkaneysluvöxtur kemur væntanlega til með að verða talsvert hraðari á síðari helmingi þessa árs en á fyrri. Vísir/Vilhelm
Væntingavísitala Gallup (VVG) hækkaði um rúm 5 stig í október frá fyrri mánuði, og mælist þar með yfir 100 stigunum sem marka jafnvægi á milli bjart- og svartsýni þriðja mánuðinn í röð. Er gildi VVG 33 stigum hærra en það var á sama tíma í fyrra, og mælist nú 108,9 stig sem er hæsta gildi vísitölunnar frá janúar 2008. Þetta kemur fram í frétt á vef Íslandsbanka. Þess má geta VVG hefur langoftast lækkað í október, á síðastliðnum 5 árum hefur það verið undantekningalaust. Hraðari einkaneysluvöxtur framundanÞróun VVG er í takti við þróun annarra hagstærða er gefa tóninn varðandi þróun einkaneyslunnar um þessar mundir, s.s. kortaveltu, nýskráningar fólksbifreiða og fjölda utanlandsferða. Gefa þær til kynna að einkaneysluvöxtur komi væntanlega til með að verða talsvert hraðari á síðari helmingi þessa árs en á þeim fyrri. Bráðabirgðatölur Hagstofunnar um þróun einkaneyslu á fyrri helmingi árs benda til þess að hún hafi vaxið um 4,4% að raungildi á milli ára, sem er mun meiri vöxtur en verið hefur undanfarin ár. Íslandsbanki telur þó að sá vöxtur sé heldur hóflegri en komi til með að reynast á árinu í heild, en eins og sjá má í þjóðhagsspá bankans er spáð 4,8% einkaneysluvexti í ár. Skýring á þeirri þróun er m.a. sú að kjarasamningaviðræður og verkfallsaðgerðir, og óvissa þeim tengd, kunni að hafa aftrað nokkuð vexti í eftirspurn heimilanna á fyrri árshelmingi, en niðurstaða þeirra viðræðna gefi svo aftur á móti innspýtingu í eftirspurn á seinni árshelmingi.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira