Matur

Kjúklingasalat með BBQ-dressingu

Matarvísir skrifar
Svava Gunnarsdóttir
matarbloggari
Svava Gunnarsdóttir matarbloggari Vísir/Einkasafn

Svava Gunnarsdóttur heldur úti fallegu matarbloggi með ótal girnilegum uppskriftum og frábærum hugmyndum fyrir eldhúsið.

Hérna gefur hún lesendum Lífsins uppskrift af sínu eftirlætissalati.

Fleiri uppskriftir frá Svövu má finna á heimasíðu hennar, Ljúfmeti.

Kjúklingasalat með BBQ-dressingu

500 g kjúklingalundir frá Rose Poultry

1 dl Hunt's Hickory & Brown Sugar BBQ Sauce

70 g furuhnetur

1 msk. tamarisósa

Spínat

1 rauð paprika, skorin í strimla

1 gul paprika, skorin í strimla

½ rauðlaukur, skorinn í fína strimla

Kokteiltómatar, skornir í tvennt

Lárpera, skorin í sneiðar

Jarðarber, skorin í tvennt

Gráðaostur (má sleppa)

BBQ-dressing

1 dl Hunt's Hickory & Brown Sugar BBQ Sauce

1 dl matreiðslurjómi

BBQ-sósu og matreiðslurjóma er blandað saman í potti og hitað að suðu. Látið sjóða við vægan hita í 5 mínútur.

Kjúklingalundum og BBQ-sósu er blandað saman í skál og kjúklingurinn látinn marinerast í 30 mínútur.

Að því loknu er hann grillaður þar til eldaður í gegn.

Furuhnetur eru þurrristaðar á pönnu við miðlungsháan hita þar til þær eru komnar með gylltan lit. Þá er tamarisósu hellt yfir og steikt áfram í 30 sekúndur (eftir að tamarisósan er komin á pönnuna er hrært stöðugt í hnetunum). Hneturnar eru þá teknar af pönnunni og lagðar til hliðar.

Samsetning

Spínati, paprikum, rauðlauki, kokteiltómötum og lárperum er blandað saman og sett í stóra skál eða á fat.

Grillaðar kjúklingalundir eru lagðar yfir, þar næst er gráðaostur mulinn yfir og að lokum er ristuðum furuhnetum stráð yfir salatið. Salatið er skreytt með jarðarberjum og borið fram með BBQ-dressingunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×