Með mikinn áhuga á veiði og körfubolta Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. febrúar 2015 10:00 Georg Andersen hefur mikinn áhuga á körfubolta og er dómari í úrvalsdeild. fréttablaðið/gva
Georg Andersen hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Inkasso. Georg var áður framkvæmdastjóri Kaptura ehf., móðurfélags Inkasso ehf. Kaptura hét áður DCG ehf. og átti í byrjun síðasta árs meðal annars félögin Hópkaup, Heimkaup, Inkasso og Leit.is. „Þetta á sér nú ákveðinn bakgrunn upp úr sprotahugsun þar sem hugbúnaðarnördarnir voru að spinna út hitt og þetta. Ég kom inn í móðurfélagið í ársbyrjun í fyrra til þess að taka svona nýja stefnu, þrengja sýnina á það sem við vorum að gera,“ segir hann. Á sama tíma voru sprotainternetfyrirtæki, sem sáu um kaup og sölu á netinu, aðskilin frá. „Ég fór í gegnum þetta með móðurfélaginu og við erum búin að selja Hópkaup og Heimkaup og fókusera á Inkasso og svo höfum við startað fleiri fyrirtækjum eins og Faktoríu sem sér um skammtímafjármögnun fyrirtækja,“ segir Georg. Georg starfaði áður sem svæðissölustjóri hjá Marel hf., forstöðumaður fjárfestatengsla og samskiptasviðs Straums-Burðaráss fjárfestingabanka, framkvæmdastóri GottKort ehf. og framkvæmdastjóri Valafells ehf. Auk þess að vera framkvæmdastjóri Inkasso er Georg framkvæmdastjóri Faktoríu, nýs fyrirtækis sem veitir fyrirtækjum skammtímalán. Faktoría er dótturfélag Inkasso. Georg lærði útflutnings- og tæknifræði með áherslu á alþjóðamarkaðsfræði í Danmörku. „Ég á mér danskar rætur og fannst tilvalið að læra í Danmörku,“ segir hann. Einnig tók hann MBA í Háskólanum í Reykjavík. Eiginkona Georgs er Gyða Hlín Björnsdóttir og eiga þau samtals fimm börn. Georg átti tvö fyrir, Gyða Hlín tvö og svo eiga þau eitt barn saman. Þau eiga bæði rætur að rekja til Snæfellsness og fara þangað oft. Hann segist hafa gengið á Snæfellsjökul en sé annars ekki mikill göngumaður. „Áhugamálin eru silungsveiði og laxveiði og á veturna er það körfubolti,“ segir hann. Hann hafi verið dómari í 20 ár og dæmi í úrvalsdeild. „Ég lít á þetta sem hobbí og er þess vegna ekki að dæma eins mikið og þeir sem eru að djöflast í þessu sem mest,“ segir Georg. Dómgæslan haldi sér í formi og þar sé góður félagsskapur. Hann segist því vera nokkuð virkur í sportinu og hafa spilað á yngri árum, með Breiðabliki og stúdentum. Georg segist horfa reglulega á NBA-leiki, íslenska boltann og aðeins á Evrópuboltann. Það séu sterk félög á Spáni og í Þýskalandi. Hann ætlar á Evrópumeistaramótið í sumar, þar sem íslenska landsliðið tekur þátt.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira