Framkvæmdastjóri Payroll fer í badminton og Boot Camp Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. febrúar 2015 12:00 Elísabet Ósk Guðjónsdóttir segist telja að það sé aukinn áhugi meðal atvinnurekenda að útvista launavinnslunni. vísir/ernir
Elísabet Ósk Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Payroll. Það er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í að þjónusta fyrirtæki sem vilja útvista verkefnum varðandi laun og starfsmannamál. „Markmiðið er bara að þetta sé fyrsti kostur allra sem eru að leita sér að launaþjónustu. Við erum að koma að útreikningi launa og líka að greiða laun. Það er líka ráðgjöf varðandi vinnutengda samninga, ef fólk vantar ráðgjöf við að búa til samninga, ráðningasamninga og starfslokasamninga og svoleiðis,“ segir Elísabet. Aðspurð segist Elísabet telja að það sé aukinn áhugi á meðal atvinnurekenda að útvista verkefnum eins og þessum. „Laun eru viðkvæmt mál og við bjóðum upp á það líka að fólk getur útvistað fyrir ákveðna starfsmenn, það þarf ekki að vera fyrir allt fyrirtækið, kannski stjórnendur eða þá sem eru með bónusa eða því um líkt,“ segir hún. Elísabet segir að PayRoll sé að þróa reiknivél sem fyrirtækið leggi áherslu á og sé um þessar mundir að kynna fyrir mögulegum viðskiptavinum. „Þessi reiknivél er bæði fyrir launagreiðendur og launþega og þeir eiga að geta séð nákvæmlega hvað þeir eru að fá í laun. Ef þeir eru að semja um 600 þúsund, þá geta þeir séð hvað þeir eru að fá útborgað,“ segir Elísabet. Áður en Elísabet hóf störf hjá PayRoll var hún fjármálastjóri hjá Sóley Orcanics „Við vorum tvær, ég og Sóley, þannig að það var heilmikil reynsla í því,“ segir Elísabet. Þar áður var hún hjá Auði Capital og Landsbankanum. Þegar Sóley er ekki að vinna kýs hún að hreyfa sig og ferðast sem mest erlendis. „Ég var að byrja í badminton, en annars eru það þessar týpísku: spinning og Boot Camp og svoleiðis,“ segir Sóley, aðspurð um uppáhaldshreyfinguna. Elísabet er í sambúð með manni sem heitir Dennis Sla. „En það eru hvorki börn né brúðkaup enn þá,“ segir hún aðspurð út í einkahagi.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira