Harmleikur í Chicago: Skaut þriggja ára bróður sinn til bana Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. október 2015 22:37 Fyrir utan heimili drengjanna í Chicago mynd/Abc
Sex ára gamall drengur skaut bróður sinn, þriggja ára, til bana fyrir slysni í Chicago í Bandaríkjunum í gær. Bræðurnir höfðu við í „löggu og bófa-leik“ þegar slysið varð. Faðir drengjanna segir að hann hafi keypt byssuna ólöglega af meðlimi glæpagengis er fram kemur í frétt ABC um málið. Að sögn lögregluyfirvalda í borginni höfðu drengirnir verið að leik á laugardag þegar eldri strákurinn teygði sig í byssuna sem lá ofan á ísskápnum. Byssan var fullhlaðin og hljóp skot úr byssunni fyrir slysni þegar henni var beint að þeim yngri. Skotið hafnaði í andliti drengsins sem var drifinn á sjúkrahús. Hann lést af sárum sínum aðfaranótt sunnudags. Faðir drengjanna var handtekinn í kjölfarið vegna gruns um vanrækslu. Að sögn saksóknara hafði faðirinn keypt byssuna ólöglega og geymdi hana í náttfötunum ofan á ísskápnum. Hann á þá einnig að hafa sýnt drengjunum hvar hana var að finna. „Hann keypti byssuna til að verja sig en hann er fyrrum meðlimur glæpagengis sem vitnaði gegn öðrum meðlimi gengisins,“ er haft eftir saksóknaranum úr réttarsalnum. Málið er talið kristalla þann vanda sem borgin stendur frammi fyrir en yfirvöld hafa lengi reynt að stemma stigu við sölu ólöglegra skotvopna í Chicago. Margfalt fleiri ólögleg skotvopn eru gerð upptæk í borginni heldur en í stórborgum á borð við New York og Los Angeles þar sem þó búa töluvert fleiri. 5500 ólöglegar byssur hafa verið gerðar upptækar það sem af er ári. Morðtíðnin í borginni er einnig sú hæsta í Bandaríkjunum. 370 hafa verið myrtir það sem af er ári samanborið við 306 á sama tíma í fyrra.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira