Með kíló af kókaíni í hljómflutningsgræjum í Leifsstöð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2015 10:32 Söluvirði efnanna er rúmlega 40 milljónir króna. Vísir
Rúmlega þrítug portúgölsk kona hefur verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa miðvikudaginn 30. september síðastliðinn reynt að koma með tæplega eitt kíló af kókaíni til landsins. Í ákæru segir að efnin hafi verið ætluð til söludreyfingar hér á landi í ágóðaskyni. Í greiningu sem fram hefur farið á efninu er ætlað að hægt sé að framleiða um 2,7 kíló af kókaíni með styrkleika 29 prósent. Konan kom til landsins með flugi Icelandair frá London en efnin voru falin í farangri hennar, nánar tiltekið pökkuð inn í hljómflutningstæki, hátalara og bassabox. Ef miðað er við síðustu könnun SÁÁ á götuverð fíkniefna má áætla að söluvirði efnanna sé rúmlega 40 milljónir króna. Málið er til meðferðar við Héraðsdóm Reykjaness. Tvö kíló tekin mánuði fyrr Mánuði áður en konan var tekinn var 39 ára gamall Brasilíumaður tekinn með tvö kíló af kókaíni í ferðatösku sinni í Leifsstöð. Vísir hefur fjallað um málið en maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi undanfarna mánuði eins og konan. Við aðalmeðferð málsins á dögunum gaf maðurinn skýrslu en óhætt er að segja að frásögn hans um tildrög þess að hann kom til Íslands hafi verið nokkuð skrautleg. Blaðamaður Vísis sat aðalmeðferðina og má lesa nánar um hana hér. Virði efnisins sem maðurinn reyndi að flytja til landsins er um 54 milljónir króna. Á um mánuði var því lagt hald á kókaín í Leifsstöð sem selja mætti á götum Reykjavíkur fyrir tæplega hundrað milljónir króna.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Handtekinn eftir röð innbrota Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Fleiri fréttir „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Sjá meira