Ók drukkin inn í hóp áhorfenda Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. október 2015 16:44 Að sögn viðbragðsaðila var aðkoman að slysstað ekki fögur. Vísir/afp
Á fimmta tug eru særðir eftir að bíl var ekið inn í hóp fólks sem fylgdist með hátíðarhöldum í Oklahoma í dag, þar af ellefu börn. Alls létust fjórir þegar ökumaður grárrar Honda bifreiðar ók inn í mannmergðina sem saman var komin í borginni Stillwater, rúma 130 kílómetra norðaustan af Oklahoma City. Eitt þeirra látnu var kornabarn. Íbúar borgarinnar höfðu safnast saman til að fylgjast með árlegri skrúðgöngu fyrir leik ruðningsliðs Ohio State háskólans þegar bílstjórinn ók inn í hópinn. Talið er að ökumaðurinn, sem Reuters segir vera hina 25 ára gömlu Avery Chambers, hafi verið ölvaður. Í tilkynningu frá lögreglu borgarinnar er tiltekið að 36 fullorðinir hafi slasast, þar af fimm lífshættulega. Faðir ökumannsins sagði í samtali við miðilinn Oklahoman að hann hafi frétt af slysinu á samfélagsmiðlum og væri í losti. „Ég skil þetta ekki. Þessi manneskja er ekki dóttir mín sem ég þekki. Ég trúi því ekki að áfengi hafi átt hlut í máli. Ég veit ekki til þess að hún sé áfengissjúklingur“, sagði faðirinn Floyd Chambers. Nærliggjandi götum var lokað meðan fjölmennar aðgerðir lögreglu og sjúkraliða stóðu yfir. Þrátt fyrir háværar raddir þess efnis var fyrrnefndur ruðningsleikur ekki blásinn af. Um 25 þúsund manns stunda nám við háskólann.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira