"Staðfesting á því að ég hafi gert eitthvað af viti á ferlinum” Þórgnýr Einar Albertsson. skrifar 16. nóvember 2015 20:08 Frá verðlaunaafhendingunni. vísir/ernir „
Mér líður bara afskaplega vel með þetta. Þetta kom mér alveg í opna skjöldu. Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með þetta. Þetta er nokkurs konar staðfesting á því að ég hafi gert eitthvað af viti á ferlinum,” segir Guðjón Friðriksson sem hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. „Guðjón Friðriksson hefur með verkum sínum markað eftirminnileg spor í íslenska bókmenntasögu og breytt viðmiðum okkar í ritun sagnfræði og ævisagna. Aðferð hans er oft á tíðum sú að sviðsetja atburði og með því móti tekst honum að glæða frásögnina lífi svo minnir helst á spennandi skáldverk þótt aldrei sé slakað á fræðilegum kröfum. Stíll Guðjóns er þróttmikill og fágaður í senn, ljóðrænn og skáldlegur, en umfram allt einstaklega læsilegur og heillandi. Það má telja víst að Jónas Hallgrímsson hefði kunnað að meta þannig stílbrögð,” segir í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu. Aðspurður um hvað hvert verka hans standi upp úr á löngum ferli segir Guðjón: „Það er erfitt að segja það en ég gæti best trúað því að ævisögurnar standi upp úr. Ég skrifaði fyrst ævisögu Jónasar frá Hriflu í þremur bindum sem ég held að sé nú bara ágæt. Það var í upphafi ferilsins þannig hún náði ekki eins mikilli útbreiðslu en ég held að hún standi ágætlega undir sínu. Síðan skrifaði ég ævisögu Einars Benediktssonar í þremur bindum. Þau hlutu alveg gríðarlega góðar viðtökur og fékk ég Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir fyrsta bindið. Svo má nefna Jón [Sigurðsson] og Hannes [Hafstein]. Ætli þetta séu ekki hápunktarnir.” Mennirnir sem Guðjón nefndi voru allir látnir er hann skrifaði bækurnar og gat hann því augljóslega ekki tekið viðtöl við þau við vinnslu ævisagnanna. „Ég reyndi að komast eins nálægt þeim eins og ég mögulega gat með því að kafa ofan í þeirra skrif og annarra um þá. Þetta eru stórar persónur í Íslandssögunni og sumar þeirra, eins og Jón, eru hafnar til skýjanna og gerðar að hálfgerðum goðum. Mig langaði að færa hann nær fólki og gera mannlegri,” segir Guðjón. Guðjón lenti þó í dálitlum vandræðum við skrifin um Jón forseta. „Hann var var um sig og virðist margt benda til að hann hafi reynt að eyðileggja gögn um sig. Hann var vel meðvitaður um stöðu sína í samfélaginu og skyldi ekki eftir neitt vont sem hefði varpað skugga á dýrlingsmyndina,” segir Guðjón. Um manninn sem verðlaunin eru kennd við segir Guðjón: „Ég er ákaflega hrifinn af honum og hef alltaf verið. Hann kemur alveg með ný blæbrigði í íslenskt tungumál með sínum kvæðum og sögum og fer að sjá ýmsa hluti sem voru mjög hversdagslegir í augum samtíðarmanna á annan hátt. Kannski því hann bjó í Kaupmannahöfn. Þá fór hann að sjá ýmislegt í náttúrunni og yrkja um það, eitthvað sem heimamönnum þótti mörgum sjálfsagt, til dæmis fífilbrekkur, fífusund og þess háttar,” segir Guðjón.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Sjá meira