Ásgerður Jóna hjólar í gagnrýnendur Fjölskylduhjálpar: „Það er alltaf eitthvað skítkast út í okkur“ Bjarki Ármannsson skrifar 13. desember 2015 22:15
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, segir það sárt að lesa gagnrýni á samtök sín á samfélagsmiðlum vegna ákvörðunar um að veita ekki íbúum í Hafnarfirði né Kópavogi matargjafir um þessi jól. Hún lét gagnrýnendur samtakanna heyra það í viðtali í sjónvarpsþættinum Eyjunni á Stöð 2 í dag. „Til þess að allir fengju núna aðstoð um jólin sem þurfa á henni að halda, ákváðum við að fókusera svolítið betur á þetta,“ sagði Ásgerður. „Við hjálpum Kópavogsbúum og Hafnfirðingum tólf mánuði á ári og höfum gert það í tólf ár. Við erum ekki að mismuna neinum.“ Í ár ákvað Fjölskylduhjálp að veita ekki matargjafir til íbúa Hafnarfjarðar og Kópavogs, þar sem sveitarfélögin styrkja ekki samtökin. Voru þeir íbúar hvattir til að snúa sér til mæðrastyrksnefnda í sínum sveitarfélögum. „Ég vil taka það fram að Reykjavík hefur stutt okkur og við erum afskaplega þakklátar fyrir það,“ sagði Ásgerður. „En við erum að hjálpa fleiri hundruð fjölskyldum í Kópavogi og í Hafnarfirði í hverjum einasta mánuði. Allt árið um kring. Og við fáum þvílíka gagnrýni fyrir þetta að við liggjum eiginlega bara sárar.“Frá matargjöf Fjölskylduhjálpar Íslands.Vísir/GVAÞjóðin veit ekki af hárgreiðslustofunni Eftir að hafa sérstaklega tekið fyrir mál Kópavogs og Hafnarfjarðar, vék Ásgerður tali sínu að gagnrýnendum samtaka hennar almennt og kom víða við. „Það eru allir að segja að Fjölskylduhjálp sé einkafyrirtækið hennar Ásgerðar,“ sagði hún. „Það er alltaf verið að persónugera þetta. En Guð hjálpi mér, ef fólk vildi bara hafa samband við Ríkisskattstjóra og sjá lögin. Lögin kveða á um það hjá okkur að ef við hættum starfsemi fara allar eigur til þess góðgerðafélags sem þarf á því að halda á þeim tímapunkti. Ég myndi halda það að miðað við alla okkar starfsemi – Það er ein manneskja á launum, ég fór á laun eftir að hafa verið launalaus í níu mánuði, við erum með gjaldkera utan stjórnar, við erum með bókara utan stjórnar og endurskoðanda. Það er alltaf verið að vera með eitthvað skítkast út í okkur en við erum eina líknarfélagið á Íslandi, við erum búin að vera með opið bókhald frá upphafi og fólk getur komið og flett fylgiskjölum hjá okkur.“ Ásgerður hélt áfram og sagði að ef afkastageta hjálparsamtaka væri mæld, myndi Fjölskylduhjálp koma sérstaklega vel út. „Við erum til dæmis með hárgreiðslustofu. Þjóðin veit það ekki. Við klipptum fjögur hundruð hausa í fyrra.“ Séra Bjarni Karlsson, sem einnig var gestur í Eyjunni, sagði að eldræðu Ásgerðar lokinni að hann vildi hafa hana sér við hlið ef hann færi einhvern tímann í stríð og líkti henni við fallbyssu. Innslag Eyjunnar í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Fleiri fréttir Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Sjá meira