Hagnaður MP Straums á fyrri árshelmingi 294 milljónir króna Sæunn Gísladóttir skrifar 23. september 2015 10:28 Sigurður Atli Jónsson er bankastjóri MP banka Straums. Vísir/GVA
Hagnaður MP Straums á fyrri helmingi ársins 2015 nam 294 milljónum króna. MP banki og Straumur fjárfestingarbanki sameinuðust 29. júní síðastliðinn og lýsir því rekstrarreikningurinn einungis rekstri MP banka á fyrri helmingi ársins auk einskiptisliða vegna samrunans. Helstu einskiptisliðir eru gjaldfærslur vegna hagræðingaraðgerða og starfsloka og tekjufærsla vegna neikvæðrar viðskiptavildar. Að teknu tilliti til einskiptisliða nam hagnaður bankans fyrir skatt 220 milljónum króna, segir í tilkynningu. Hagræðingaraðgerðirnar munu efla rekstur bankans til frambúðar og árangurinn af þeim má sjá strax á þriðja ársfjórðungi 2015. Eigið fé MP Straums þann 30. júní 2015 nam 7.687 milljónum króna og námu heildareignir 70.847 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall sameinaðs banka nam 18,4% í lok júní samanborið við 17,4% eiginfjárhlutfall MP banka og 20% eiginfjárhlutfall Straums fjárfestingabanka í árslok 2014. Innstæður hjá Seðlabanka og traustum erlendum fjármálastofnunum og veðhæf skuldabréf hjá seðlabönkum voru um 40% af heildareignum bankans í lok júní. MP Straumur sameinaði alla starfsemi sína undir einu þaki í Borgartúni 25 í lok ágúst 2015. Starfsemi bankans frá samruna hefur farið vel af stað. Vöxtur hefur verið hjá eignastýringu bankans sem hlaut viðurkenningu World Finance fyrir framúrskarandi árangur annað árið í röð. Eignir í stýringu námu 107 milljörðum króna í lok ágúst 2015. Frá því samruninn varð að veruleika hefur MP Straumur verið með mestu markaðshlutdeild á skuldabréfamarkaði í Kauphöll Íslands (Nasdaq OMX Ísland), 34,2% í ágúst og 24,5% í júlí 2015. Samanlögð markaðshlutdeild MP banka og Straums fjárfestingabanka frá áramótum hefur verið 32,3%.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira