Telja formann bæjarráðs tefla fram villandi tölum Sveinn Arnarsson skrifar 11. nóvember 2015 07:00 Loka á leikskóla í suðurbæ Hafnarfjarðar, sem í daglegur tali nefnist Kató. Deilt er um hversu mikill sparnaður náist með aðgerðunum. Fréttablaðið/GVA
Forsvarsmenn minnihluta bæjarstjórnar í Hafnarfirði telja Rósu Guðbjartsdóttur, formann bæjarráðs, hafa farið með rangt mál þegar hún fullyrðir að tæpar 45 milljónir króna sparist með því að loka leikskólanum Brekkuhvammi í Hafnarfirði. Rósa stendur hins vegar við fyrri fullyrðingar sínar en telur aðdróttanir í sinn garð alvarlegar. Minnihluti bæjarstjórnar sendi frá sér tilkynningu þar sem útreikningarnir eru dregnir í efa. Í stað 45 milljóna króna sparnaðar sé hann ekki nema um fimm til sex milljónir. „Inni í þeirri fjárhæð sem formaður bæjarráðs nefndi í umræddu viðtali er launakostnaður sem ekki er áætlað að sparist þó svo að umræddri starfsstöð verði lokað. Sá kostnaður nemur um 70 prósentum af þeirri fjárhæð sem fullyrt var í umræddu viðtali að kæmi til lækkunar útgjalda bæjarsjóðs,“ segir í fréttatilkynningunni. Rósa stendur við fullyrðingar sínar. „Ég stend fullkomlega við yfirlýsingar mínar og orð um heildaráhrif þess að starfsstöð leikskólans Brekkuhvamms verði lögð niður og komið hafa fram, til dæmis í fréttum Stöðvar 2,“ segir Rósa og bendir á að tölurnar séu fengnar frá rekstrarstjóra á fjármálasviði Hafnarfjarðarbæjar. „Því get ég ekki svarað svo alvarlegum ásökunum og dylgjum fulltrúa minnihlutans, sem sendar hafa verið á fjölmiðla í dag, með öðrum hætti.“ Adda María Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, segir þessa framsetningu formanns bæjarráðs villandi. „Hefur hún látið hafa eftir sér að ef ekki verði af þessari lokun þurfi að hækka leikskólagjöld um 11 prósent. Maður getur leyft sér að túlka það sem svo að hún sé þarna að stilla foreldrum upp við vegg.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Segir stjórnina láta hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira