Sýknaður af kynferðisbroti gegn fjórtán ára þroskaskertri stúlku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. nóvember 2015 17:44 Var piltinum gefið að sök að hafa látið hana fróa sér og haft við hana samræði án þess að gæta nægjanlegrar varúðar um aldur stúlkunnar. Héraðsdómur Vestfjarða kvað upp dóm sinn í gær. Vísir/Rósa
Piltur á menntaskólaaldri hefur verið sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku með þroskaskerðingu á Vestfjörðum. Var honum gefið að sök að hafa látið hana fróa sér og haft við hana samræði án þess að gæta nægjanlegrar varúðar um aldur stúlkunnar. Héraðsdómur Vestfjarða kvað upp dóm sinn í gær.Móðir brotaþola lagði fram kæru fyrir hönd ólögráða dóttur sinnar vegna aburðarins sem átti sér stað 30. maí árið 2014. Fyrir liggur að stúlkan hafði samband við piltinn að fyrra bragði á Facebook og spurt hann hvort hún mætti koma með honum á rúntinn. Hann var þá akandi um með vinum sínum. Hann hafi sagt henni að það kostaði eitthvað. Kom hann í heimsókn til hennar þar sem óumdeilt er að fyrrnefndir atburðir áttu sér stað. Fyrir dómi var deilt um hvort pilturinn hefði gert sér grein fyrir að stúlkan var ekki orðin fimmtán ára og því ólögráða. Pilturinn sagðist ekki hafa vitað um aldur stúlkunnar annað en það að hún væri fædd árið 1999. Hann hefði spurt hana út í aldur hennar þegar hann kom í heimsókn og hún sagt honum að hún væri 15 ára. Var framburður hans metinn trúverðugur þrátt fyrir að vera að litlu leyti breyttur frá skýrslutöku hjá lögreglu.Með slakari dómgreind en jafnaldrar hennar Stúlkan sagðist hins vegar ekki hafa sagt ákærða að hún væri orðin 15 ára. Hún taldi hann hafa verið meðvitaðan um að hún væri fædd árið 1999 auk þess sem upplýsingar um aldur hennar, þ.e. fæðingardag, hefði verið að finna á Facebook. Þessu neitaði pilturinn og benti á að slíkum upplýsingum mætti hæglega breyta eftir á. Fyrir liggur að stúlkan hefur verið greind með væga þroskaskerðingu. Barnalæknir hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins sagði að reikna mætti með því að dómgreind hennar væri slakari en hjá jafnöldrum. Auðveldara væri að hafa áhrif á hana auk þess sem hún sé með athyglisbrest. Sennilega gerðu ekki allir sér grein fyrir því eftir stutt spjall að stúlkan væri með þroskaskerðingu en það færi eftir umræðuefninu. Vinkona stúlkunnar, sem hafði verið í heimsókn hjá henni áður en pilturinn mætti, sagði stúlkuna hafa verið „geðveikt“ ánægða og brosandi þegar hún kom aftur og spennt að fá að fara á rúntinn með ákærða. Þær væru ekki vinkonur í dag en þó engin illindi þeirra á milli. Þá sagði vinkonan að stúlkan hefði sagst hafa sagt ákærða að hún væri aðeins eldri en hún væri í raun og veru. Var framburður vitnisins metinn trúverðugur. Þá báru vinir piltsins að hann hefði sagt þeim að stúlkan hefði sagst vera orðin fimmtán ára. Varð það niðurstaða dómsins að nógu mikill vafi væri uppi um að pilturinn hefði gerst sekur um kynferðisbrotið sem hann var ákærður fyrir. Ekki væri komin fram lögfull sönnun og var hann því sýknaður.Dóminn í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Fleiri fréttir Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Sjá meira