Pizza 67 auglýst til sölu á Bland ingvar haraldsson skrifar 16. desember 2015 10:43 Pizza 67 var lokað fram eftir degi í gær eftir að rafmagnið var tekið af. vísir/anton
Búið er að auglýsa pitsastaðinn Pizza 67 til sölu á söluvefnum Bland.is. Þar kemur fram að um sé að ræða lítinn en þekktan pitsastað á góðum stað í Reykjavík. Staðurinn sé með öllum tólum og tækjum sem þurfi til rekstursins. Uppgefið verð er tíu milljónir króna en fram kemur að skipti komi til greina. Í auglýsingunni er sagt að um sé að ræða 100 fermetra pitsastað í Grafarvogi, þar sem annar pitsastaður Pizza 67 er til húsa. Ekki liggur fyrir hvort staðurinn við Grensásveg fylgi með í kaupunum en ekki náðist í Anton Traustason, eiganda Pizza 67 við vinnslu fréttarinnar.Sjá einnig: Endurkoma Pizza 67: „Höfum þurft að ganga í gengum helvíti“Eigandi húsnæðis veitingastaðar Pizza 67 við Grensásveg hefur einnig auglýst húsnæðið til sölu. Þar kemur fram að eignin hafi nýlega verið tekin í gegn að innan. Öll tæki í eldhúsi og innréttingar og góður og virkur leigusamningur fylgi með í kaupunum.Pitsastaðurinn í Grafarvogi var einnig lokaður á meðan rafmagnslaust var á staðnum.vísirÓgreidd laun og reikningar Veitingastaðir Pizza 67 voru lokaðir fram á kvöld í gær eftir að lokað var fyrir rafmagnið vegna ógreiddra rafmagnsreikninga. Staðirnir opnuðu á ný í gærkvöldi eftir að rafmagnið komst á á ný.Sjá einnig: Lokað á Pizza 67 eftir að rafmagnið var tekið af Vísir greindi nýlega frá því að P67 ehf. sem rekur veitingastaði Pizza 67 skuldi starfsmönnum laun og hafi hvorki greitt lífeyrissjóðum né verkalýðsfélögum lögbundnar greiðslur. Þá herma heimildir Vísis að í síðustu viku hafi verið lokað fyrir sölu og bókhaldskerfi Pizza 67 auk þess að starfsmenn Pizza 67 hafi ekki fengið greidda desemberuppbót.Lofaði að allir fengju greitt Anton Traustason, eigandi Pizza 67, sagði við Vísi í síðustu viku að allir starfsmenn fengju greitt en það tæki tíma. Hann bar fyrir sig að opnun staðarins við Grensásveg hefði verið dýrari en gert hafi verið ráð yfrir í upphafi en var þess fullviss að reksturinn kæmist í samt lag á næstunni enda væri desember stærsti mánuður ársins í skyndibitabransanum.
Tengdar fréttir Endurkoma Pizza 67 ekki gengið áfallalaust: „Höfum þurft að ganga í gengum helvíti“ Pizza 67 skuldar laun, lífeyris- og verkalýðsfélagagreiðslur. 7. desember 2015 16:19 Lokað á Pizza 67 eftir að rafmagnið var tekið af Lokað var fyrir rafmagnið hjá Pizza 67 í gær vegna ógreiddra rafmagnsreikninga. 16. desember 2015 07:00 Opna nýjan Pizza67 stað á Grensásvegi Margir pítsastaðir hafa áður starfað í húsnæðinu, þar á meðal Pizzahúsið, fyrsti pítsustaður landsins. 29. maí 2015 10:48 Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Sjá meira
Endurkoma Pizza 67 ekki gengið áfallalaust: „Höfum þurft að ganga í gengum helvíti“ Pizza 67 skuldar laun, lífeyris- og verkalýðsfélagagreiðslur. 7. desember 2015 16:19
Lokað á Pizza 67 eftir að rafmagnið var tekið af Lokað var fyrir rafmagnið hjá Pizza 67 í gær vegna ógreiddra rafmagnsreikninga. 16. desember 2015 07:00
Opna nýjan Pizza67 stað á Grensásvegi Margir pítsastaðir hafa áður starfað í húsnæðinu, þar á meðal Pizzahúsið, fyrsti pítsustaður landsins. 29. maí 2015 10:48