Umfjöllun: Ísland - Danmörk | Ísland úr leik á HM Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Lusail skrifar 26. janúar 2015 13:40 Mikil vonbrigði hjá íslenska liðinu í kvöld eins og sjá má. vísir/eva björk
Ísland er úr leik á HM í handbolta eftir að liðið tapaði stórt fyrir Danmörku í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld. Eins og lokatölurnar bera með sér áttu Danir ekki teljandi vandræðum með slakt íslenskt lið í kvöld. Rétt eins og svo oft áður á HM í Katar náðu strákarnir ekki að sýna sitt rétta andlit. Ísland byrjaði illa í þessum leik eins og svo oft áður í þessari keppni og í þetta sinn varð það þeim að falli. Danir leiddu, 7-2, eftir þrettán mínútur og þó svo að strákarnir hafi komið sér aftur inn í leikinn var forysta danska liðsins aldrei í hættu. Guðmundur Guðmundsson er þjálfari danska liðsins en hann var eins og flestir þekkja þjálfari íslenska liðsins um árabil og byggði að mörgu leyti upp þann kjarna sem staðið hefur að velgengni strákanna okkar um árabil. Hvort þessi kjarni verði áfram á næstu stórmótum, komist Ísland þangað, verður að koma í ljós. En frammistaða strákanna í kvöld var langt frá þeim gæðaflokki sem liðið hefur verið lengst af undanfarinn áratug. Alexander Petersson var besti sóknarmaður íslenska liðsins og Björgvin Páll Gústavsson varði eins og svo oft áður oft vel. En heilt yfir vantaði gríðarlega mikið upp á, bæði í vörn og sókn. Þá er ekki að spyrja að leikslokum gegn jafn sterku liði og því danska. Fyrir leik óttaðist ég ekkert meira en slæma byrjun íslenska liðsins. Það var nákvæmlega það sem gerðist. Strákarnir byrjuðu þennan leik alveg jafn hörmulega og þeir hafa gert í hinum leikjum sínum í keppninni og Danir komust í 6-0 forystu. Fyrsta mark Íslands skoraði Alexander Petersson eftir tæplega sjö mínútna leik en fram að því höfðu strákunum verið refsað fyrir afar staðan og ófrumlegan sóknarleik. Flestum sóknunum lauk með skoti en það var ekki að sjá á dönsku vörninni og markverðinum Niklas Landin að þeir þurftu að hafa mikið fyrir því að standa sína vakt. Danir röðuðu mörkum í öllum regnbogans litum - úr fyrstu bylgju, annarri bylgju, langskotum af línunni og úr horninu. Það var verið að rúlla yfir íslenska liðið af svo miklum krafti að manni féllust hendur. Á þrettándu mínútu skoraði Mikkel Hansen mark eftir að hafa fengið flugbraut innan punktalínunnar. Guðjón Valur tók sprettinn á miðju til að fara í sókn, eins og vaninn er. Þegar hann leit við og sá alla aðra leikmenn íslenska liðsins standa eins og þvara með hangandi haus tók fyrirliðinn sinn til og öskraði á liðsfélaga sína. Hingað til hefur mér ekki þótt tilefni til að efast um vinnusemi, elju og dugnað íslensku leikmannanna. En á þessu augnabliki var manni spurn. Staðan var orðin 9-2 og 47 mínútur eftir af leiknum. Í hvað stefndi eiginlega þessi þvæla? Sem betur fer áttu strákarnir í það minnsta einhver svör. Og það hófst hjá Björgvini Páli Gústavssyni. Hann hrökk í gang, varði vel í nokkur skipti og það skilaði ódýrum mörkum fyrir íslenska liðið. Sem betur fer náðu strákarnir að koma til baka og sýna að þeir áttu enn erindi í þennan leik. Aron Kristjánsson, þjálfari Íslands, reyndi allt sem hann gat. Það var augljóst. Sóknaruppstillingin var ný í nánast hverri sókn og hann lét reyna á allar mögulegar samsetningar þar til að eitthvað bar árangur. Gunnar Steinn Jónsson, Sigurbergur Sveinsson og Arnór Þór Gunnarsson komu inn og skiluðu ágætu framlagi inn á milli og strákarnir náðu jafnt og þétt að saxa á forystu heimamanna. Vandinn var hins vegar sá að Danir héldu áfram að skora sín mörk og þó svo að íslenska vörnin hafi staðið ágætlega þegar hún fékk tækifæri til að stilla upp fundu lærisveinar Guðmundar reglulega leið fram hjá henni. Það er of mikið að gefa Dönum sjö marka forystu í forgjöf á fyrstu þrettán mínútum leiksins. Danir héldu velli og leiddu með sex í hálfleik, 16-10, og ekki útlit fyrir annað en að Íslendingar þyrftu kraftaverk til að eiga einhvern möguleika á almennilegri endurkomu í síðari hálfleik. Kraftaverkið kom ekki. Danir byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og voru komnir átta mörkum yfir eftir aðeins örfáar mínútur. Það var barátta í íslenska liðinu en allt virtist falla Dönum í hag - fráköst, vafasamir dómar og áfram héldu þeir að skora. Vörnin fór að gefa eftir og Danir skoruðu grimmt að utan. Það var þó ekki við Björgvin Pál að sakast en hann varði oft á tíðum vel. Varnarlínan var hins vegar flöt og dönsku skytturnar fengu bæði pláss og tíma til að taka sín skot. Tíminn vann með Dönum og þeir héldu ÍSlendingum í öruggri fjarlægð. Svo einfalt var það. Danir stigu aldrei af bensíngjöfinni og strákarnir áttu aldrei raunverulegan séns. Þegar öllu er á botninn hvolft virtist íslenska liðið á löngum köflum í þessu móti skorta gæðin til að standa í bestu liðum þessa móts. Það komu góðir kaflar inn á milli og þeir voru allt of fáir. Slæmu kaflarnir voru svo slæmir að þeir létu miðlingslið líta út fyrir að vera efni í heimsmeistara. Danir voru betri aðilinn í þessum leik og áttu skilið að fara áfram í fjórðungsúrslit keppninnar. Þátttöku Íslands á HM í handbolta er þar með lokið.
HM 2015 í Katar Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Sjá meira