Gripin á stolnum bíl á stolnum númerum á leið til Reykjavíkur Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. október 2015 12:05 Það var í mörg horn að líta hjá lögregluni á Suðurlandi í síðustu viku. Vísir/HARI
Lögreglan á Suðurlandi glímdi við margskonar verkefni í liðinni viku. Flugslysaæfing fór fram á Höfn, ölvaður gestur á veitingastað sló til lögreglumanna og kona var handtekinn á leið til Reykjavíkur á stolnum bíl á stolnum skráningarnúmerum. Bifreiðareigandi á Selfossi kom á lögreglustöðina þar í bæ í sl. viku og sagði að skráningarnúmerum hefði verið stolið af bifreið sinni. Hann sneri aftur skömmu síðar og taldi sig hafa séð skráningarnúmerin á svartri BMW-bifreið á leið norður yfir Ölfusábrú. Lögreglumenn hófu leit að bifreiðinni og fundu hana við Kögunarhól. Kona sem reyndist undir áhrifum fíkniefna ók bifreiðinni og var hún svipt ökuréttindum. Einnig kom í ljós að bifreiðinni hafði verið stolið í Reykjavík. Lögreglumenn á Höfn í Hornafirði voru kallaðir út á veitingastað í bænum á laugardagskvöld vegna manns sem svaf þar ölvunarsvefni. Eitthvað fór það í taugarnar á honum þegar lögreglumenn vöktu hann, veittist hann að þeim og tókst að slá í andlit eins lögreglumann. Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu. Tvo beinbrot komu á borð lögreglu í vikunni. Stúlka fótbrotnaði við Stafafell í Lóni er henni skrikaði fótur. Var hún flutt með með flugi til Reykjavíkur þar sem hún hlaut aðhlynningu. Á föstudaginn ökklabrotnaði kona við Jökulsárlón þegar hún hnaut um stein. Einnig fór fram um helgina umfangsmikil flugslysaæfing á Hornafjarðarflugvelli þar sem æfð voru viðbrögð við brotlendingu farþegaflugvélar með 21 farþega innanborðs. Almannadeild ríkislögreglustjóra setti upp æfinguna sem þótti takast vel.Helstu verkefni lögreglunnar á Suðurlandi vikuna 20. til 26. október 2015. Um helgina fór fram flugslysaæfing á...Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Monday, 26 October 2015
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira