Viðskipti innlent

Starfsmenn McDonalds segja öryggi sínu stefnt í hættu

ingvar haraldsson skrifar
Starfsmenn McDonalds segja starfsaðstæður þeirra hættulegar.
Starfsmenn McDonalds segja starfsaðstæður þeirra hættulegar. vísir/getty
Starfsmenn Bandaríska skyndibitarisans McDonalds hafa kvartað til yfirvalda þar í landi vegna hættulegra vinnuaðstæðna á veitingastöðum McDonalds í 19 borgum. Starfsmenn segjast hafa orðið fyrir alvarlegum brunasárum  vegna heitra grillplatna og steikingarolíu. Fortune greinir frá.

Kvartanirnar eru hluti baráttu fyrir bættum launum og betri vinnuaðstöðu. Starfsmenn McDonalds hafa þegar kvartað yfir því að launum þeirra sé stolið, kynþáttamismunum sé stunduð hjá McDonalds og komið sé í veg fyrir að þeir gangi í eða stofni verkalýðsfélög.

Starfsmenn McDonalds halda því fram að þrýst sé á þá að hreinsa steikingarplötur og setja nýjan síur í djúpsteikingarpotta á meðan tækin séu enn heit. Þá vanti einnig skyndihjálparkassa og hlífðarbúnað á veitingarstaði McDonalds.

Var sagt að setja sinnep á brunasár

Brittney Berry, 24 ára starfsmaður McDonalds í Chicago, segir í samtali við Fortune að hún hafi runnið í bleytu og hlotið í leiðinni alvarleg brunasár á hendi. Slysið sem varð í eldhúsi McDonalds hafi valdið henni taugaskaða.

Hún segir að yfirmenn hennar hafi beðið hana um að setja sinnep á brunasárið. Atvikið er ekki talið einsdæmi en yfirmenn McDonalds hafa verið sakaðir um að segja undirmönnum sínum að setja  majónes og sinnep á brunasár og halda áfram að vinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×