Uppfært 16:00
Vegna ábendinga og til að fyrirbyggja allan misskilning er vert að undirstrika að Kynleikar eru hluti af Afrekssýningu kvenna, sem nú er yfirstandandi í Ráðhúsinu.
...
Hefur ekkert með afrek kvenna að gera
Sóley hefur gefið út að mistök hafi verið gerð við uppsetningu sýningarinnar, ekki hefði átt að hafa hana í gangi á matmálstímum í ráðhúsinu. Sýningartímanum hefur nú verið breytt.
„Mér hreinlega blöskrar eða skil ekki svona list, þetta hefur ekkert með afrek kvenna að gera,“ segir Sveinbjörg en Kynleikarnir eru hluti Afrekssýningar í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar og sett upp í tengslum við 100 ára kosningaafmæli kvenna, sem haldið var hátíðlegt á síðasta ári. Sveinbjörg Birna telur það ekki til helstu afreka kvenna í gegnum tíðina að hafa svipt sig klæðum og tekið þátt í klámi. Í samtali við Vísi segist hún ekki skilja hvernig þessi femíníski vinkill tengist konu, og veltir því fyrir sér hvort rétt sé að femínistar taki sér það vald að tala fyrir hönd allra kvenna.

Vísir hefur heimildir fyrir því að allur undirbúningur sýningarinnar hafi einkennst af nokkru stefnuleysi. Fyrir nokkrum mánuðum var Sara Hrund Einarsdóttir, starfsmaður Reykjavíkurborgar, fengin af borgaryfirvöldum til að annast textaskrif sem til stóð að sýningin byggðist á.
Þegar sá texti barst var hann ekki talinn nothæfur, og voru þá blaðamennirnir og femínistarnir María Lilja Þrastardóttir og Ingimar Karl Helgason kölluð til auk Andrésar Inga Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarmanns Svandísar Svavarsdóttur.
Skammur tími var þá til stefnu og skrifuðu þau texta á tveimur sólarhringum sem byggði á linkasafni sem Andrés Ingi hafði tekið til af timarit.is og sent þeim. Sýningin, úrklippur af tímarit.is, byggir svo að verulegu leyti á þessu. Samkvæmt heimildum Vísis hljóðaði kostnaðaráætlun þá upp á sex milljónir, en talið að enn skorti fé til að ljúka við uppsetningu sýningarinnar.

Vísir hafði samband við Bjarna Brynjólfsson, upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar, og óskaði eftir sundurliðun á kostnaði við Afrekssýningu kvenna og þann þátt sýningarinnar sem er undir yfirskriftinni: Kynleikar. Í svari Bjarna kom fram að gert sé ráð fyrir að sýningin í heild geti kostað allt að 6,5 milljónir króna. „Þó er alls ekki víst að öll sú upphæð verði nýtt,“ segir Bjarni í svari til Vísis. Hann segir sundurliðun á einstökum atriðum sýningarinnar ekki liggja fyrir.
„Forsætisnefnd hefur samþykkt þá fjárveitingu og enginn pólitískur ágreiningur um það. Í þessu felst uppsetning og efni fyrir sýningu á öllum hæðum og í öllum sölum ráðhússins – laun sýningarstjóra og viðburðir á meðan á sýningunni stendur, t.d. málþing um kynjaða fjárhagsáætlunargerð sem mun fara fram í dag, kvikmyndasýningar, fundir, málþing og listviðburðir,“ segir Bjarni.
Málið er gríðarlega viðkvæmt og þeir sem Vísir hefur rætt við telja sig ekki í stöðu til að tjá sig um það opinberlega. En, þeir hinir sömu vilja meina að sýningin beri þess merki að ófaglega hafi verið að henni staðið.
Allt gegnsýrt í klámvæðingunni
Vísir hefur reynt að ná tali af Sóley Tómasdóttur vegna málsins, án árangurs og þá hefur Hildur Lilliendahl, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg kosið að tjá sig ekki þegar eftir því hefur verið leitað. Hún tjáði sig þó lítillega og með óbeinum hætti um málið á Twitter í gær.
Hæ. Ég vinn í Ráðhúsinu. Við erum gyðingahatarar sem triggerum ofbeldisþolendur með klámi og leggjum fólk í einelti með kökum. #góðurdagur
— ♀Hildur Lilliendahl♀ (@hillldur) September 17, 2015
Sýningarstjórn Kynleika er svo með höndum Heiðrúnar Grétu Viktorsdóttur og Sigríðar Þóru Óðinsdóttur. Þær munu leiða gesti um sýninguna á sunnudag.

Gróft áreiti á vinnustað
Heggur þá líkast til sá er hlífa skyldi, en á það er bent í grein á hinu femíníska veftímariti Knúz, eftir þau Gísla Ásgeirsson og Höllu Sverrisdóttur, að þarna séu listamennirnir að gera sig seka um nákvæmlega það. „Fólk á rétt á því að verða ekki fyrir áreiti, hvað þá grófu áreiti, á vinnustað sínum. Með öðrum orðum, fólk getur ekki farið eitthvert annað og þar af leiðandi varla undrunarefni þótt einhver hafi tekið sig til og slökkt á klámsjóinu.“
Málið virðist því ekki aðeins umdeilt sem slíkt, heldur einnig innan femínistahreyfingarinnar sjálfrar.
Uppfært 20. september
Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar stóð að Sara Hrund Einarsdóttir hefði verið ráðin til að sinna textaskrifum fyrir sýninguna. Hið rétta er að hún var starfsmaður Reykjavíkurborgar og fengin til þess eins og stendur í uppfærðri útgáfu.