Heimsótti Bessastaði á tíu milljóna Volvo: Hver er kínverski fjárfestirinn Li Shufu? Bjarki Ármannsson skrifar 8. júlí 2015 15:22 Li Shufu er einn ríkasti maður Kína. Vísir/EPA
Greint var frá því í síðustu viku að kínverska fjárfestingarfélagið Geely Group hefði keypt hlut í íslenska fyrirtækinu Carbon Recycling International fyrir rúmlega sex milljarða íslenskra króna. Samkvæmt heimildum fréttastofu eignast kínverska félagið um þriðjungshlut í fyrirtækinu. Li Shufu, stofnandi og stjórnarformaður Geely Group, er um margt áhugaverður. Hann er einn ríkasti maður Kína og vakti mikla athygli utan heimalandsins árið 2010 þegar hann keypti sænska bílaframleiðandann Volvo.Li var viðstaddur undirritun samninga við CRI í Hörpu á dögunum.Vísir/GVAYrkir ljóð og birtir á vefsíðu sinni Að því er tímaritið The Economist greinir frá, þykir Li mjög jarðbundinn þrátt fyrir að eignir hans séu metnar á nærri þrjú hundruð milljarða íslenskra króna. Hann gæti hófsemi í klæðaburði og búi í látlausri íbúð í Peking. Hann þyki ekki sérvitur en hafi þó mikið gaman að því að yrkja ljóð og ku hann hafa birt tugi ljóða á vefsíðu sinni. Li hefur líkt sér við bandaríska bílaframleiðandann Henry Ford og þeir eiga það vissulega sameiginlegt að hafa alist upp í sveit en snemma uppgötvað áhuga sinn á verkfræði og viðskiptum. Li þótti snemma athafnasamur en verðlaun sem honum hlotnaðist við útskrift úr skóla notaði hann til að kaupa reiðhjól og gamla myndavél sem hann notaði til að taka myndir af ferðamönnum sem heimsóttu heimaslóðir hans. Hann lauk meistaragráðu í verkfræði á níunda áratugnum og á þeim tíunda hóf hann að framleiða mótorhjól og síðar bíla. Hann stofnaði Geely, sem þýðir „heppinn“ á mandarín kínversku, og fór með það á markað árið 2005.Li heimsótti Bessastaði í heimsókn sinni til Íslands.Mynd/Volvo á Íslandi / BrimborgVolvo eins og „tígrisdýr í fjöllunum“ Tímasetningin hefði vart getað verið betri. Bandaríska bílaborgin Detroit kom mjög illa út úr efnahagshruninu árið 2008 en um svipað leyti fór bílasalan hjá Geely á flug. Árið 2010 tók hann svo stórt skref upp á við þegar hann festi kaup á Volvo fyrir um 240 milljarða íslenskra króna. Li hefur alltaf sagst vilja styðja við „sjálfstæði“ sænska fyrirtækisins. „Þetta er eins og tígrisdýr í fjöllunum,“ hefur tímaritið Forbes eftir Li um Volvo. „Það á ekki að halda því föngnu í dýragarði.“ Í Íslandsheimsókn Li í síðustu viku þótti við hæfi að hann keyrði um á Volvo og lánaði bílaumboðið Brimborg honum nýjan Volvo XC90 sem meðal annars var notaður til að heimsækja Forseta Íslands á Bessastaði. Á blaðamannafundi í Hörpu í síðustu viku var tilkynnt um kaupin á hlut í CRI og sagðist Li við það tilefni vera mjög spenntur fyrir því að fá að vinna með íslenska fyrirtækinu.„Geely hefur skuldbundið sig til að ná markmiðum til lengri tíma um að draga alveg úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda með fjölbreyttum tækninýjungum, til dæmis endurnýjanlegu metanóli sem orkugjafa á bifreiðar,“ sagði Li. „Þessi fjárfesting mun byggja á þeirri metanóltækni sem við búum yfir í dag sem gerir okkur auðveldara að taka upp nýja tækni til að efla þessa starfsemi í Kína.“
Tengdar fréttir Kínverjar kaupa þriðjungshlut í CRI Kínverska fjárfestingarfélagið Geely Group hefur keypt hlut í Carbon Recycling International fyrir 45,5 milljónir dollara, eða sex milljarða króna. Hyggjast nýta tækni félagsins í bílaframleiðslu og til að draga úr mengun. Eignast þriðjungshlut. 4. júlí 2015 07:00 Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Kínverjar kaupa þriðjungshlut í CRI Kínverska fjárfestingarfélagið Geely Group hefur keypt hlut í Carbon Recycling International fyrir 45,5 milljónir dollara, eða sex milljarða króna. Hyggjast nýta tækni félagsins í bílaframleiðslu og til að draga úr mengun. Eignast þriðjungshlut. 4. júlí 2015 07:00