Allir starfsmenn myndu fá vinnu hjá Alvogen Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 2. júlí 2015 19:38
Allir 300 starfsmenn Actavis munu halda sinni vinnu gangi kaup Alvogen á lyfjaverksmiðjunni í Hafnarfirði eftir. Forstjóri Alvogen segir starfsemina í Hafnarfirði vel geta verið samkeppnishæfa. Actavis tilkynnti á mánudag að lyfjaverksmiðju fyrirtækisins í Hafnarfirði verði lokað um mitt ár 2017. Er þetta gert í hagræðingarskyni. Fréttablaðið greindi síðan frá því í morgun að lyfjafyrirtækið Alvogen hefði lagt fram kauptilboð í verksmiðjuna fyrir tveimur vikum með það að markmiði að tryggja áframhaldandi rekstur. „Almennt séð voru viðbrögðin ekki neikvæð. Það er að segja, menn voru tilbúnir að skoða hugsanlega sölu á verksmiðjunni. En það strandaði á því hvort að menn voru tilbúnir að láta frá sér aðra starfsemi hér á Íslandi með í kaupunum eða ekki,“ segir Róbert Wessman, forstjóri Alvogen. Tilboðinu var því formlega hafnað en Róbert segir enn mikinn áhuga hjá Alvogen að kaupa verksmiðjuna. Hann segir starfsemina í Hafnarfirði vel geta verið samkeppnishæfa. Alls munu um 300 starfsmenn missa vinnuna í Hafnarfirði ef verksmiðjunni verður lokað. En koma þessir starfsmenn til með að halda sinni vinnu, gangi kaup Alvogen eftir? „Ég hefði nú, eins og við höfum skoðað þetta, við fengum aðgang að ákveðnum gögnum. Við hefðum rekið verksmiðjuna í óbreyttri mynd. Actavis hefði þá flutt út sína framleiðslu á tiltölulega skömmum tíma og við hefðum þá á sama tíma byrjað að færa inn okkar framleiðslu. Þannig að við hefðum fyllilega gert ráð fyrir því já,“ segir Róbert. Boltinn í samningaviðræðunum sé því hjá Actavis en forsvarsmenn fyrirtækisins vildu ekki veita viðtal vegna málsins í dag.
Tengdar fréttir Tilboði Alvogen hafnað en hafa enn áhuga Róbert Wessman segir Alvogen vilja íslenskan markað Actavis með í kaupunum. 2. júlí 2015 12:19 Róbert vill kaupa Actavis Lyfjafyrirtækið Alvogen vill kaupa verksmiðju Actavis í Hafnarfirði. Formlegt tilboð var lagt fram fyrir tveimur vikum og er upphæð tilboðsins á fimmta milljarð króna. Til stendur að loka verksmiðjunni árið 2017. 2. júlí 2015 07:00 Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira
Tilboði Alvogen hafnað en hafa enn áhuga Róbert Wessman segir Alvogen vilja íslenskan markað Actavis með í kaupunum. 2. júlí 2015 12:19
Róbert vill kaupa Actavis Lyfjafyrirtækið Alvogen vill kaupa verksmiðju Actavis í Hafnarfirði. Formlegt tilboð var lagt fram fyrir tveimur vikum og er upphæð tilboðsins á fimmta milljarð króna. Til stendur að loka verksmiðjunni árið 2017. 2. júlí 2015 07:00