Stefna á sjálfstæði frá Spáni eftir 18 mánuði Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 28. september 2015 07:00 Sjálfstæðissinnar fagna niðurstöðum kosninga í miðborg Barcelona. NordicPhotos/AFP
Bandalag flokka sem aðhyllast sjálfstæði Katalóníu frá Spáni sigraði í héraðsþingkosningum til katalónska þingsins í gær. Þeir munu freista þess að mynda þingmeirihluta um einhliða aðskilnað við Spán. Bandalagið, sem kallast Sameinuð um já, fær samkvæmt útgönguspám 63 til 66 þingmenn á héraðsþinginu en líklegt er að bandalagið myndi meirihluta með vinstriflokknum Framboð um þjóðarsamstöðu, sem spáð er á bilinu 11 til 13 þingmönnum. 68 þingmenn þarf til að ná meirihluta á héraðsþinginu, sem telur 135 þingmenn. Næststærsta framboðið er framboð Borgaraflokksins, sem hafnar þjóðernishyggju og aðhyllist evrópska sambandsstjórnarhyggju. Það fær töluvert færri þingmenn eða 19 til 21. Bandalagið Sameinuð um já er samstarf hægriflokkanna Lýðræðissamkomu Katalóníu og Demókrataflokks Katalóníu annars vegar og vinstri flokkanna Vinstri lýðveldisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar hins vegar. Flokkarnir sammældust fyrir kosningarnar um að leggja til hliðar sín hefðbundnu stefnumál til að sameina krafta sína til að tryggja sjálfstæði. Ef bandalagið tryggir sér þingmeirihluta hefur forseti Katalóníu, Arthur Mas, lofað að Katalónía lýsi yfir einhliða sjálfstæði eftir átján mánuði. Hann vill að Katalónía hefji strax að byggja upp sjálfstæðar stofnanir á borð við seðlabanka, utanríkisþjónustu og her. Íbúar Katalóníu gengu að kjörborðinu í nóvember í fyrra til að greiða atkvæði um sjálfstæði í óformlegri þjóðaratkvæðagreiðslu. 80 prósent kjósenda voru hlynnt sjálfstæði en stjórnvöld í Madríd viðurkenndu ekki lögmæti kosninganna og hafa heitið því að skjóta öllum yfirlýsingum um sjálfstæði til dómstóla. Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur þvertekið fyrir sjálfstæði Katalóníu. „Sjálfstæði er ekki í boði fyrir Katalóníu og Katalónía er hvorki að fara að yfirgefa Spán né Evrópusambandið.“ Rajoy er þeirrar skoðunar að sjálfstæði Katalóníu varði alla Spánverja og því væri réttast að allir íbúar Spánar fengju að kjósa um sjálfstæði Katalóníu. Spán munar miklu um aðild Katalóníu þar sem héraðið, sem telur 16 prósent íbúa Spánar, telur 20 prósent af þjóðarframleiðslu Spánar.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira