Auglýsing KFC í Suður-Afríku veldur usla Samúel Karl Ólason skrifar 19. október 2015 11:16 Úr auglýsingunni.
Móðir brimbrettakappans Mick Fanning er brjáluð yfir auglýsingu frá KFC. Auglýsingin gerir grín að því þegar Fanning komst í návígi við Hvítháf í beinni útsendingu í júlí. Elizabeth Osborne segir fyrirtækið sýna Fanning, og öllum þeim sem hafi lent í hákarlaárás, vanvirðingu. Fanning var í keppni við strendur Suður-Afríku og var að bíða eftir góðri öldu í úrslitum keppninnar þegar hákarlinn réðst á hann. Fyrir einskæra heppni tókst Fanning þó að komast undan hákarlinum á sundi, þangað til björgunarmenn á sjósleðum komu honum til bjargar. Atvikið átti sér stað í beinni útsendingu. Í auglýsingunni er leikari sem líkist Fanning í sömu aðstöðu en hann lyftir hákarlinum upp fyrir höfuð sér á meðan hann brýtur öldurnar á fleygiferð. Elizabeth bendir í samtali við Sydney Morning Herald, á að fjöldi fólks hafi látið lífið í árásum hákarla. Lögmenn World Surf League, ætla að reyna að ná auglýsingunni úr sýningu, en þeir segja hana brjóta gegn reglum deildarinnar. Auglýsingin var upprunalega eingöngu birt í Suður-Afríku en hefur nú vakið heimsathygli.Auglýsingin frá KFC Hákarlaárásin
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira