Íslenskur fjárkúgari í haldi í Dubai sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 3. desember 2015 10:28 Ian Strachan eða Charles Goldstein líkt og hann heitir í dag. Myndin af Ian er tekin árið 2007.
Hinn íslensk ættaði Ian Strachan Aðalsteinsson, krúnukúgarinn svokallaði, sætir farbanni í Dubai. Hann er sagður skulda bílaleigu 100 þúsund pund vegna skemmda á bifreið af gerðinni Audi R8. Ian var árið 2008 dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að reyna kúga fé út úr bresku kóngafólki.Í frétt Daily Mail segir að Ian gangi nú undir nafninu Charles Goldstein. Hann hafi verið fastur í Dubai í átta mánuði vegna málsins en að Ian neiti alfarið sök. Hann viðurkennir að skulda bílaleigunni pening, en segir hana hljóða upp á eitt þúsund pund, eða tæpar 200 þúsund krónur. Hann var færður í hald lögreglu, en sjálfur segist hann fórnarlamb í málinu - skemmdirnar hafi verið unnar á bílnum áður. Þá segir í fréttinni að Ian hafi eytt 34 þúsund pundum í lýtaaðgerðir, en þar neitar hann að hafa gengist undir slíkar aðgerðir í þeim tilgangi að geta farið huldu höfðu. Ian komst í heimspressuna árið 2007 þegar hann var sakaður um að hafa hótað að birta kynlífsmyndband af meðlimum bresku konungsfjölskyldunnar. Þá hét hann Paul Aðalsteinsson og var skráður til heimilis í Vestmannaeyjum. Hann er Skoti af íslenskum ættum. Athygli vakti að Ian fékk lögmanninn Giovanni di Stefano til að verja sig, en hann hefur varið menn eins og Slobodan Milosevic og Saddam Hussein. Þá varði hann jafnframt breska fjöldamorðingjann Harold Shipman og barnaníðinginn Gary Glitter. Stefano er sjálfur dæmdur svikahrappur og var gerður útlægur úr Bandaríkjunum. Stöð 2 fjallaði nokkuð um málið á sínum tíma, líkt og sjá má hér fyrir neðan.
Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Erlent Fleiri fréttir „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Sjá meira