Álverið í Straumsvík fór áður fram á hið gagnstæða Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 19. júlí 2015 13:40 Gylfi Arnbjörsson, forseti ASÍ. Vísir/Vilhelm
Álverið í Straumsvík óskaði sjálft eftir því í upphafi rekstrar að tryggja starfsöryggi starfsmanna með því að setja takmarkanir á verktöku í kjarasamningum. Nú strandar gerð kjarasamninga á kröfum fyrirtækisins um aukna verktöku. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins, segir kröfuna þýða færri störf og lægri laun. Segir hann að oft hafi verið tekist á um ákvæði um verktöku í kjarasamningum starfsmanna í álverinu. Sjónarmið stjórnenda fyrirtækisins eru þau að fyrirtækið búi við einna þrengstu skorður allra fyrirtækja á Íslandi hvað varðar heimildir til verktöku. Nú vilja stjórnendur fyrirtækisins rýmri heimildir og allt að hundrað launamenn hjá fyrirtækinu gætu orðið verktakar. Í því samhengi minnir Gylfi á að það hafi verið ósk fyrirtækisins sjálfs að setja þessar þröngu skorður í upphafi. „Það var að ósk Ísal að vera með svolítið lokað umhverfi. Það var þannig í upphafi þessarar verksmiðju að vilja hafa þetta umhverfi svolítið öðruvísi en á íslenskum vinnumarkaði, líka hvað varðar afgreiðslu kjarasamninga og annað. Það var ýmislegt sem fyrirtækið fékk í staðinn. Starfsmenn fengu líka ýmis ákvæði þar á meðal að þeir stæðu ekki frammi fyrir svona hótunum,“ segir Gylfi og segist skilja sjónarmið og reiði starfsmanna álversins í baráttu sinni.
Tengdar fréttir Siðlaus krafa að gera launamenn að verktökum Trúnaðarmaður starfsmanna í álverinu í Straumsvík segir kröfur um að hundrað starfsmenn fyrirtækisins verði verktakar siðlausar. 18. júlí 2015 19:11 Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Siðlaus krafa að gera launamenn að verktökum Trúnaðarmaður starfsmanna í álverinu í Straumsvík segir kröfur um að hundrað starfsmenn fyrirtækisins verði verktakar siðlausar. 18. júlí 2015 19:11